- What: Traffic accident on road near Sólheimajökul
- Impact: Road closures and traffic disruptions
Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þetta staðfestir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi. Upplýsingar um slys á fólki liggja ekki fyrir. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Á vef Vegagerðarinnar segir að búast má við umferðartöfum eða lokunum á Hringvegi undir Sólheimajökli vegna umferðaróhapps. Búist er við að geta opnað veginn kl. 21:30. Fréttastofu hefur borist ábending um að bílaröðin nái austur að Pétursey. Fréttin verður uppfærð. Aðsend