Innlent | mbl | 5.9.2026 | 22:12 Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Sveinn Andri Sveinsson. Ljósmynd/Guðmundur Rúnar Guðmundsson Setja bókamerki „Það er algjör grundvallarmisskilningur að þetta hjálpi mönnum eitthvað í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi, að fá svona forvirkar heimildir og lengja gæsluvarðhald, þetta er bara della.“ Þetta segir hæstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson um fyrirhugaðar breytingar dómsmálaráðherra á sakamálalögum. Breytingarnar fela meðal annars í sér lengingu gæsluvarðhalds og að lögreglu verði heimilt að ráðast í rannsóknaraðgerðir áður en leyfi dómara liggur fyrir. Frétt af mbl.is Vilja geta gert eignir upptækar án sakfellingar Mjög varhugavert „Eins og þetta hefur verið kynnt þá líst mér engan veginn á þetta. Það er greinilegt að þarna hefur lögreglan verið með einhvern óskalista og virðist ætla að fá hann í formi þessa frumvarps,“ segir Sveinn Andri. Hann tekur sem dæmi fyrirhugaða heimild til að lengja gæsluvarðhaldsvist í allt að sex mánuði án þess að ákæra hafi verið gefin út, til dæmis ef grunur er um skipulagða brotastarfsemi. „Þetta er þetta er mjög varhugavert, í fyrsta lagi vegna þess að lögreglan hefur almennt séð farið mjög óvarlega með þær heimildir sem hún hefur í dag. Í öðru lagi þá hefur það líka sýnt sig að það mega varla tveir, þrír fremja brot saman áður en lögreglan kallar það skipulagða brotastarfsemi. Þannig að það er voðalega auðvelt að hengja það hugtak utan á mörg brot og lengja þannig gæsluvarðhaldsréttinn. Þannig að þetta hljómar mjög illa.“ Sveinn Andri bætir við að í sínum verjendastörfum síðustu 35 árum hafi hann kynnst því ítrekað hvernig gæsluvarðhald sé notað til að knýja fólk til sagna auk þess sem a’ rannsóknir hafi sýnt fram á að einangrunarvist til lengri tíma eigi til að valda varanlegum heilsubresti hjá fólki. Rétti manna varpað fyrir róða Þá líst Sveini Andra líka illa á áform um að lögreglu verði heimilt að ráðast í rannsóknaraðgerðir áður en leyfi dómara liggur fyrir. „Það á að varpa fyrir róða rétti manna til þess að halda sínum fjármálum leyndum. Það á að varpa fyrir róða réttindum fólks til þess að hafa heimilisfrið eða halda í heiðri friðhelgi heimilisins vegna þess að þarna eru einhverjir rannsóknarhagsmunir lögreglunnar teknir fram yfir þessa grundvallarhagsmuni,“ segir hann. Lögregla einfaldlega of óskipulögð Spurður út í það sjónarmið að rýmri rannsóknarheimildir lögreglu séu nauðsynlegar til þess að ráðast gegn skipulagðri brotastarfsemi gefur Sveinn Andri lítið fyrir það. „Ef við erum eftirbátar einhverra annarra ríkja í baráttunni við skipulagða glæpahópa þá er það bara vegna þess að lögreglan er einfaldlega of óskipulögð. Það þarf þá að endurskipuleggja starfsemi lögreglunnar miklu frekar en að gefa henni lengri tíma til þess að hanga yfir málum. Það eru stórkostleg vandamál sem lögreglan á við að stríða, innri vandamál, skipulagsleysi og mikið af fólki sem gerir ekki neitt, einhverjir óþarfir millistjórnendur. Endurskipulagning á rannsóknum sakamála er verkefni sem þarf að ráðast í,“ segir Sveinn Andri. „Það er algjör grundvallarmisskilningur að menn hérna telji að þetta hjálpi mönnum eitthvað í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi að fá svona forvirkar heimildir og lengja gæsluvarðhald, þetta er bara della.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Trúbadorinn þurfti sveitina í lífið Leikurinn í Mosó kláraður á morgun Manstu eftir svaðalegasta fertugsafmæli aldarinnar? Mikil dramatík í stórleiknum Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hagtölur þjóðarinnar færðar yfir Borgartúnið RÚV eigi ekki að „bítast um molana“ Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir Mest lesið Í gær Í vikunni Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Nýjast á mbl.is » Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Trúbadorinn þurfti sveitina í lífið Leikurinn í Mosó kláraður á morgun Manstu eftir svaðalegasta fertugsafmæli aldarinnar? Mikil dramatík í stórleiknum Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir „Margir Íslendingar vilja ekki leysa ráðgátuna“ Finnbjörn kveður á komandi þingi ASÍ Mest lesið Í gær Í vikunni Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Skjálftinn á svæði sem vert er að fylgjast með Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Jarðskjálfti austan við Kleifarvatn Telja of dýrt að gera upp aldargamalt hús Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Rafmagnslaust í Mosfellsbæ, Grafarholti og Grafarvogi Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar