Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Slys Bílvelta nærri Húsavík Ragnhildur Helgadóttir Bíll valt á Norðausturvegi skammt frá Saltvík, sunnan við Húsavík, skömmu eftir miðnætti. Einn hlaut lítilsháttar áverka. Þetta segir Heimir Heiðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Handtekinn fyrir að stela dósum úr gámi Maður var handtekinn fyrir að stela dósum úr gámi í miðborginni í kvöld eða nótt. Hann reyndist vopnaður hnífi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í allmörg útköll vegna ölvunar og slagsmála. Fyrir 54 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Stormasamt sumar og spillingarmál sem skekja forsetaskrifstofuna Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherra var vikið úr embætti. Síðar lagði hann til að haldnar yrðu kosningar. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem teygir sig inn á forsetaskrifstofuna. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Lægð nálgast landið Lægð stefnir ört að landi með vaxandi norðaustan- og austanáttum. Hviður gætu farið yfir 20 m/s við fjöll á Suður- og Suðausturlandi. Hitinn verður á bilinu 6 til 16 stig. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Kjörstaðir opnaðir í Saxlandi-Anhalt þar sem AfD gæti tryggt sér meirihluta á þingi Kjörstaðir voru opnaðir klukkan átta í morgun að staðartíma í sambandslandinu Saxlandi-Anhalt í Þýskalandi. Kannanir benda til að harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland tryggi sér um 40% atkvæða og jafnvel hreinan meirihluta á þingi. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti „Ég er ekki nógu ruglaður til þess að fá bolta í hausinn“ Alex Unnar Hallgrímsson er upprennandi stjarna í handbolta sem bíður óþolinmóður eftir því að komast í atvinnumennsku. Hann hefur engan áhuga á að spila í markinu eins og stóri bróðir, Viktor Gísli Hallgrímsson, sem gefur litla bróður mörg góð ráð. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stóriðja Álverksmiðjan á Grundartanga nánast komin í fullan rekstur Álverksmiðja Norðuráls á Grundartanga hefur náð næstum fullum afköstum eftir að framleiðsla var stöðvuð í annarri kerlínu vegna bilunar í rafspennum. Þess vegna dróst framleiðsla saman um tvo þriðju hluta. Vel gekk að útvega varahluti. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelsher gerir hefndarárásir á suðurhluta Líbanons Ísraelsher gerir loftárásir á suðurhluta Líbanons í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah á hersveitir á öryggissvæði á landamærum ríkjanna. Íbúum bæjar er sagt að forða sér vegna árása á vígi Hezbollah þar nærri. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Sendiherra Bandaríkjanna sakar bresk stjórnvöld um gyðingahatur Markús Þ. Þórhallsson Mike Huckabee er sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael. EPA / ALAA BADARNEH Sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, Mike Huckabee, sakar bresk yfirvöld um gyðingahatur eftir að utanríkisráðherrann Ed Milliband sagði stöðu almennings á Gaza vera skelfilega. „Bretar hafa farið yfir strikið. Gyðingahatur ríkisstjórnarinnar er stjórnlaust og hún tekur ekkert tillit til staðreynda,“ skrifaði Huckabee á X. Þetta gerðist eftir færslu Millibands á samfélagsmiðlum þar sem hann kvaðst hafa verið staddur á Gaza og fengið staðreynt að Ísraelsríki stöðvaði afhendingu lyfja og annarra nauðsynja og á sama tíma týndu börn lífi meðan þau biðu aðstoðar. Utanríkisráðuneyti Ísraels sagði ekkert hæft í því að lyf kæmust ekki til íbúa Gaza. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Búist við að von der Leyen bjóði enn aukinn fjárhagsstuðning í tveggja daga heimsókn Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kemur til Grænlands í dag og á morgun verður undirritaður samstarfssamningur sambandsins og grænlensku heimastjórnarinnar. Búist er við að hún bjóði aukinn fjárhagsstuðning. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Ævintýrapersónurnar við Oddeyrargötu fara í vetrarhvíld á morgun Ævintýragarðinum við heimili alþýðulistamannsins Hreins Halldórssonar verður á morgun lokað fyrir veturinn. Þar má finna ævintýraverur af ýmsu tagi sem eru handverk Hreins. Hann er ánægður með sumarið þótt færri hafi komið í garðinn en fyrir ári. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Argentína Milei hótar olíufyrirtækjum refsiaðgerðum starfi þau nærri Falklandseyjum Stjórnvöld í Argentínu boða viðurlög og refsingar gegn þeim olíufélögum sem starfa án leyfis nærri Falklandseyjum eftir að forseti landsins sagði í sjónvarpsávarpi vinda breytinga blása þannig að landið geti gert kröfu til eyjaklasans. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Støre: Geimskotið er bylting fyrir Noreg Norski forsætisráðherrann segir landið hafa komist á spjöld sögunnar með velheppnuðu skoti geimflaugar í kvöld með gervihnetti innanborðs. Flaugin er hönnuð í samvinnu við þýskt sprotafyrirtæki og er sú fyrsta til að fara út í geim frá Vestur-Evrópu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Vilhjálmur prins við jarðarför Haraldar konungs fyrir hönd föður síns Samkvæmt venju verður Karl þriðji Bretakonungur ekki viðstaddur jarðarför frænda síns Haraldar Noregskonungs. Fyrir hans hönd fer Vilhjálmur prins. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Átta ára stofnuðu eigið fótboltamót Átta ára strákar úr Garðabæ stofnuðu sitt eigið fótboltamót. Þar eru verðlaunin þrívíddarprentuð og vafaatriði í leikjunum eru metin með aðstoð farsíma, í stað VAR-dómgæslu. 5. september 2026 kl. 22:32ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Sendimenn Bandaríkjanna báru fjölda leiða til að ljúka stríðinu undir Rússlandsforseta Útsendarar Bandaríkjastjórnar ræddu við Rússlandsforseta í dag um leiðir til friðar í innrásarstríðinu gegn Úkraínu. Talsmaður stjórnarinnar segir þá hafa borið fjölda uppbyggilegra hugmynda undir forsetann og að Rússar séu bjartsýnir á lausn. 5. september 2026 kl. 21:24INNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Nær dauða en lífi eftir að hafa innbyrt nikótínpúða Hundar geta veikst alvarlega við að innbyrða nikótínpúða. Dýralæknir segir grun um að hundar hafi látist vegna þessa. Íslenski fjárhundurinn Kátur var nærri dauða en lífi eftir að hafa komist í slíkan púða. 5. september 2026 kl. 21:08INNLENDAR FRÉTTIR Peningar Kerfi Teya komið í lag og greiðsluposar virka sem skyldi Truflun á kerfi fjártæknifyrirtækisins Teya í dag olli því að posar sem eru tengdir kassakerfum tóku ekki við færslum. Posarnir virka nú á ný. 5. september 2026 kl. 20:51INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Kleinuhringjakeppni og dúkakippingar á 30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans Kleinuhringjakeppni, matreiðslukeppni og rófukrulla var meðal þess sem var á dagskrá í þrjátíu ára afmæli Hótel- og matvælaskólans í dag. Fjöldi fólks mætti enda ýmsar kræsingar í boði fyrir gesti og gangandi. 5. september 2026 kl. 20:39INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandi Sex eru slasaðir, þar af tveir alvarlega eftir þriggja bíla árekstur á Suðurlandi í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti fjóra til aðhlynningar í Reykjavík. Hringvegurinn hefur verið opnaður að nýju til vesturs. 5. september 2026 kl. 20:05INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Umferðarslys austan Sólheimajökulsvegar Björgvin Brynjarsson Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi austan Sólheimajökulsvegar á sjöunda tímanum í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar auk þriggja sjúkrabíla og dælubíls voru kölluð út. Þetta staðfestir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi. Upplýsingar um slys á fólki liggja ekki fyrir. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Á vef Vegagerðarinnar segir að búast má við umferðartöfum eða lokunum á Hringvegi undir Sólheimajökli vegna umferðaróhapps. Búist er við að geta opnað veginn kl. 21:30. Fréttastofu hefur borist ábending um að bílaröðin nái austur að Pétursey. Fréttin verður uppfærð. Aðsend 5. september 2026 kl. 19:52INNLENDAR FRÉTTIR Noregur Hefði rétt eins getað gerst hér Rússneskt rannsóknarskip liggur enn við höfn á Svalbarða vegna skuldar Rússa við Úkraínu og gruns um áróðursstarfsemi. Hafréttarsérfræðingur segir að slíkt gæti vel gerst hér á landi. 5. september 2026 kl. 19:37ERLENDAR FRÉTTIR Nepal Björguðu tveimur til viðbótar í Nepal Björgunarsveitir í Nepal náðu í dag að bjarga tveimur sem hefur verið saknað síðan meiri háttar aurskriða féll fyrir tveimur dögum. 5. september 2026 kl. 19:36ÍÞRÓTTIR Fótbolti Fimm jafntefli í ensku úrvalsdeildinni Hans Steinar Bjarnason Jafnteflin voru áberandi í þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag en fimm af sjö leikjum dagsins lyktaði þannig. Man City er áfram með fullt hús stiga eftir 1-0 sigur á Coventry þar sem Erling Haaland skoraði sitt 300. mark í efstu deildum félagsliða. Crystal Palace vann sinn fyrsta sigur, 3-2 gegn Fulham, eftir að hafa lent undir tvívegis. Tottenham hefur hins vegar enn ekki skorað í deildinni eftir markalaust jafntefli við Nottingham Forest. Erling Haaland skoraði sigurmark Manchester City gegn Coventry. EPA / ADAM VAUGHAN Úrslit dagsins Newcastle 2-2 Bournemouth Brentford 1-1 Sunderland Brighton 1-1 Leeds Fulham 2-3 Crystal Palace Man. City 1-0 Coventry Nottingham Forest 0-0 Tottenham Hull 0-0 Aston Villa 5. september 2026 kl. 19:09ERLENDAR FRÉTTIR Argentína Dóttur nasista gert að skila Portrett af hefðarfrú Dóttur fjármálaráðgjafa þýska Nasistaflokksins hefur verið gert að skila erfingja hollenska listaverkasafnarans Goudstikker málverki sem uppgötvaðist fyrir tilstilli fasteignaauglýsingar í fyrra. 5. september 2026 kl. 19:04ÍÞRÓTTIR Handbolti „Þessir dagar eru búnir að vera mjög skrýtnir“ Óvænt úrslit urðu þegar keppni hófst í úrvalsdeild kvenna í handbolta í dag. Aðeins eru níu dagar síðan Selfyssingum var úthlutað laust sæti í deildinni en Selfoss vann öruggan sigur á Íslandsmeisturunum í Val. 5. september 2026 kl. 18:18ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher svarar Írönum – Hæfðu þrjú olíuflutningaskip Íranir skutu flugskeytum að tveimur skipum Bandaríkjah