Hagnaður Rea ehf., móðurfélags Airport Associates og Suðurflugs, dróst saman um 76% milli ára á síðasta ári og nam 214 milljónum króna, samanborið við 881 milljón árið áður. Gjaldþrot Play, sem var stærsti viðskiptavinur samstæðunnar, hafði veruleg áhrif á afkomuna. Tekjur Rea námu 6,1 milljarði króna og drógust saman um 11% milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, lækkaði úr tæpum 1,4 milljörðum í 814 milljónir króna. Meðalfjöldi ársverka var 306. Rea tók þátt í skuldabréfaútboði Play skömmu fyrir gjaldþrot flugfélagsins og keypti skuldabréf fyrir 185 milljónir króna. Eignin var færð að fullu niður eftir gjaldþrotið og hlutabréf í Play, bókfærð á 33 milljónir króna, voru einnig afskrifuð. Viðskiptakrafa Rea á hendur Play stóð í 209 milljónum í árslok. Krafan er tryggð með veði í flugvélavarahlutum Play, en skiptastjóri hafnaði veðkröfunni. Rea mótmælti og hefur ágreiningnum verið vísað til dómstóla. Þrotabú Play höfðaði jafnframt mál gegn Rea og Airport Associates í júlí og krefst riftunar greiðslna fyrir samtals um 470 milljónir króna. Þar af viðurkennir búið greiðslu reikninga fyrir um 370 milljónir og nemur endurgreiðslukrafan því um 100 milljónum. Eignir Rea námu 7,6 milljörðum króna í árslok, eigið fé 4,1 milljarði en fasteign félagsins að Fálkavelli 7 var metin á 4,8 milljarða. Stjórn leggur til að enginn arður verði greiddur á árinu. Horn IV á 45% í Rea. Elías Skúli Skúlason, sem var varaformaður stjórnar Play, og Guðbjörg Astrid Skúladóttir eiga 26,13% hvort. Fyrirséð er að umsvif samstæðunnar dragist saman á þessu ári vegna gjaldþrota Play. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem birtist 2. september.