Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tryggði Everton jafntefli gegn Man Utd á lokamínútunni

  • What: Football match between Everton and Manchester United
  • Impact: No security impact
Read Full Article →

Everton og Manchester United gerðu dramatískt 2-2 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bryan Mbeumo kom United yfir strax í upphafi síðari hálfleiks en Tyrique George jafnaði á 83. mínútu. Benjamin Sesko virtist síðan hafa tryggt United sigur þegar hann skallaði inn fyrirgjöf Luke Shaw á 88. mínútu. Everton gafst þó ekki upp og Ainsley Maitland-Niles tryggði liðinu stig með glæsilegu marki á lokamínútu uppbótartíma. Everton er enn taplaust með 5 stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. United er með 4 stig. Ainsley Maitland-Niles fagnar jöfnunarmarkinu dramatíska.EPA / ADAM VAUGHAN Everton 2-2 Manchester United Mörk Everton: George 83., Maitland-Niles 90+6. Mörk Man Utd: Mbeumo 47., Sesko 88.

Share this article