Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Atlanta menn meðal tekjuhæstu

  • What: Ownership changes in Air Atlanta
  • Impact: No security impact
Read Full Article →

Eigendur Haru Holding, sem var þar til nýverið móðurfélag flugfélagsins Atlanta, voru meðal tekjuhæstu Íslendinganna árið 2025. Greint var frá því fyrr í ár að lykilstjórnendur flugfélagsins, undir forystu forstjórans Baldvins Más Hermannssonar, höfðu keypt meirihluta félagsins. Jafnframt bættist bandaríska félagið Atlas Air Worldwide í eigendahópinn. Eftir viðskiptin eiga lykilstjórnendurnir 51% hlut en Atlas 49%. Sjá einnig Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta Seljendur voru Hannes Hilmarsson, Geir Valur Ágústsson, Stefán Eyjólfsson og Helgi Hilmarsson, sem eignuðust Air Atlanta og tengd félög árið 2007. Saman eiga þeir félagið Haru Holding, sem átti í árslok 80% hlut í Atlanta. Geir Valur var í níunda sæti á lista yfir þá 150 Íslendinga sem voru með mestar fjármagnstekjur í fyrra. Hann var með 1.211 milljónir en hann á 30% í Haru Holding og átti þar með 24% hlut í Atlanta. Hannes Hilmarsson, fyrrverandi stjórnarformaður flugfélagsins, var þá með 497 milljónir í fjármagnstekjur en hann á 50% hlut í Haru Holding og átti þar með 40% hlut í Atlanta. Stefán Eyjólfsson, sem á 10% hlut í Haru Holding og átti þar með 8% í Atlanta, var með 327 milljónir. Samstæða Haru Holding hagnaðist um 69,2 milljónir dala í fyrra, eða sem nemur 8,9 milljörðum króna. Félagið greiddi ríflega 60 milljónir dala í arð í fyrra, eða um 7,8 milljarða á meðalgengi ársins 2025, og lagði til allt að 90 milljónir dala arðgreiðslu í ár, sem er um 10,9 milljarðar á gengi dagsins í dag. Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Atlanta, var einnig á listanum með 253 milljónir. Hann á 40% hlut í Natsu Holding, félagi sem átti 20% í Air Atlanta. Natsu Holding hagnaðist um 8,6 milljónir dala, eða um 1,1 milljarð króna, og greiddi 5,2 milljónir dala, eða um 666 milljónir króna, í arð en stjórn lagði til allt að 14 milljóna dala arðgreiðslu í ár. Eins og áður segir keypti Baldvin og aðrir lykilstjórnendur meirihluta í Air Atlanta fyrr á árinu. Gert var ráð fyrir að viðskiptunum myndi ljúka á þriðja ársfjórðungi 2026, að uppfylltum venjubundnum skilyrðum, þar á meðal samþykki eftirlitsaðila. Kaupverð er trúnaðarmál. Fjallað var um tekjuhæstu Íslendingana í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.

Share this article