- What: Volcanic activity disrupts air travel in Jakarta
- Impact: Airports closed, thousands of travelers affected
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Indónesía Miklar truflanir á flugumferð vegna eldgoss Markús Þ. Þórhallsson Örtröð í flugstöðinni við alþjóðaflugvöllinn við Djakarta. EPA / FAISAL RAMADHAN Millilandaflugvöllurinn í indónesísku höfuðborginni Djakarta verður lokaður hið minnsta til klukkan sex síðdegis að staðartíma vegna eldgoss í fjallinu Anaka Krakatá. Lokunin nær einnig til minnst sex flugvalla til viðbótar. Þúsundir farþega komast því hvorki lönd né strönd og flugmálayfirvöld hvetja þá til að fylgjast grannt með framvindu mála. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelski herinn gerði loftárásir á bæ í suðurhluta Líbanons í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah Ísraelsher gerði árásir á bæ í suðurhluta Líbanon eftir að hafa skipað íbúunum að koma sér brott. Hezbollah hafi bækistöð þar. Árásin sé í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah á ísraelskar hersveitir. Forseti Líbanons krefst þess að atlögum linni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bólivía Minnst sex fórust í sprengingu í herstöð og ellefu enn saknað Vitað er að hið minnsta sex fórust í öflugri sprengingu sem varð í herstöð á föstudagskvöldið. Þrjú lík fundust í rústum húsa í gær til viðbótar þremur sem þegar höfðu fundist. Enn er 11 saknað. Fyrrverandi forseti kallar aðkomu stjórnvalda glæp. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Boða 15 ára aldurstakmark að samfélagsmiðlum Markús Þ. Þórhallsson Danska ríkisstjórnin hyggst feta í fótspor nokkurra annarra ríkja og setja aldurstakmark á notkun samfélagsmiðla. Christina Egelund ráðherra. EPA / Olivier Matthys Öllum börnum undir fimmtán ára verður þá algerlega bannað að nota miðlana. Christina Egelund, ráðherra vísinda-, mennta- og stafrænna mála, greindi frá þessu í dag. Frumvarp þessa efnis hefur verið í umsagnarferli og til stendur að lög taki gildi 1. júlí á næsta ári. Opinbert aldurstakmark á flestum samfélagsmiðlum er þrettán ár og í upphaflegum drögum átti að heimila þrettán til fjórtán ára börnum að nota þá með samþykki foreldra eða forráðamanna. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Alternative für Deutschland sigurvegari í Saxlandi-Anhalt Harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland er sigurvegari í þingkosningum í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Flokkurinn tvöfaldar fylgi sitt frá síðustu kosningum og fær um 44% atkvæða. Kristilegir demókratar eru langt á eftir. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Lykilmaður Svíþjóðardemókrata í leyfi því sambýliskona hans er sökuð um dreifingu rússnesks áróðurs Einn helsti lykilmaður Svíþjóðardemókrata ætlar að taka sér leyfi eftir að sambýliskona hans var sökuð um að dreifa rússneskum áróðri. Hann segir málið rifið úr samhengi. Forsætisráðherra segir brotthvarfið góða lausn. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tillögur Bandaríkjamanna sagðar innihalda „áhrifaríkar lausnir“ Talsmaður úkraínsku forsetaskrifstofunnar segir tillögur Bandaríkjastjórnar innihalda ákvæði sem gætu leitt til samkomulags við Rússa. Þar væri að finna áhrifaríkar lausnir. Úkraínuforseti hefur sagt stríðið geta teygt sig inn í komandi vetur. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fimm látnir eftir að flugvél fór útaf flugbraut í lendingu Fimm eru látnir eftir að flutningaflugvél fór út af flugbraut í lendingu á alþjóðaflugvellinum í Miami í kvöld. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Palestína „Bjuggumst ekki við því að Ísraelsher yrði svona illskeyttur í garð hjálparstarfsmanna“ Alþjóðasamfélagið verður að liðka fyrir aukinni mannúðaraðstoð á Gaza, segir forseti Rauða hálfmánans í Palestínu. Þrátt fyrir að hafa upplifað ýmislegt á löngum ferli hafa grimmd Ísraelshers og vanvirðing við alþjóðalög komið honum á óvart. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Stefnir í söluhæsta bíósumar allra tíma Bíósumarið 2026 gæti reynst það stærsta í sögunni í Norður-Ameríku. Köngulóarmaðurinn trónir á toppnum en Ódysseifur nýtur enn mikilla vinsælda. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Upp úr sauð þegar Bandaríkjakonur sluppu með skrekkinn Bandaríkin sluppu heldur betur með skrekkinn gegn Ítalíu á HM kvenna í körfubolta í kvöld. Heimsmeistararnir unnu 55–52 eftir mikla dramatík á lokasekúndunum. Ein óvæntustu úrslit mótsins urðu í gær þegar Malí vann stórveldið Spán. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Múlaþing Lögboðin þjónusta þyrfti að víkja eigi Múlaþing að bjarga Valaskjálf Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir sveitarfélagið ekki hafa tekið ákvörðun um aðkomu sveitarfélagsins að framtíð samkomusalarins Valaskjálf á Egilsstöðum. Hún segir aðrar áætlanir þurfi að víkja eigi sveitarfélagið að koma að málum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Kort eigi að sýna heiminn eins og hann er Nýtt heimskort sem samþykkt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á að sýna heiminn á raunsannari hátt. Landfræðingur segir að kort eigi að sýna heiminn eins og hann er. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Gætu orðið söguleg kosningaúrslit í Þýskalandi Þýska harðlínuflokknum AfD er spáð mjög góðu gengi í kosningum sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Valskonur úr fallsæti og FH á toppinn Hans Steinar Bjarnason Valur kom sér úr fallsæti í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag með stórsigri á Grindavík/Njarðvík, 4-1. Síðarnefnda liðið, sem leikur til bikarúrslita um næstu helgi, komst yfir í upphafi leiks áður en Valskonur svöruðu með fjórum mörkum, þar af gerði Emma Hawkins tvö. Valur er nú í áttunda sæti með 20 stig og fer í neðri hlutann ásamt Fram, Þór/KA og Víkingi. Grindavík/Njarðvík heldur sér í efri hlutanum á betri markatölu gegn Fram sem er með jafnmörg stig. Úr leik Vals og Grindavíkur/Njarðvíkur í Bestu deild kvenna fyrr í sumar. Mummi Lú FH vann Þór/KA 2-1 eftir að hafa lent undir. FH fór á toppinn og er stigi yfir Breiðabliki sem á leik til góða gegn Þrótti annað kvöld. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Íþróttir Krúttlegasta hjólamót landsins Börn á aldrinum tveggja til tólf ára öttu kappi á hjólamóti fyrir börn í Öskjuhlíð í gær. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkraína og Rússland þurfa bæði að gefa eftir ef friður á að nást Sendimenn frá Bandaríkjunum funduðu með Úkraínuforseta í dag. Steve Witkoff segir að bæði Úkraína og Rússland þurfi að slá af kröfum sínum ef friður á að nást. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Slys Vilja fjarlægja klett af slysstað Vegagerðin vill fjarlægja klettinn þar sem þrjú ungmenni létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi. Rannsóknarnefnd umferðarslysa taldi rétt að vara við hættulegri beygju þar eftir banaslys sem varð á nákvæmlega sama stað árið 2007. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal vann stórleikinn eftir að hafa lent undir Arsenal er enn með fullt hús stiga í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 2-1 sigur á Chelsea í stórleik helgarinnar. Fyrr í dag náði Everton dramatísku jafntefli gegn Manchester United. 6. september 2026 kl. 17:17ÍÞRÓTTIR Formúla 1 Ótrúlegur sigur Antonelli eftir að hafa ræst nítjándi Hans Steinar Bjarnason Kimi Antonelli vann ótrúlegan heimasigur í ítalska Formúlu 1-kappakstrinum á Monza í dag eftir að hafa ræst í 19. sæti vegna refsinga. Antonelli, sem leiðir heimsmeistaramótið, vann sig hratt upp eftir að keppnin var stöðvuð þegar Charles Leclerc ók á vegg. Ítalinn var þá kominn í sjötta sæti og hélt áfram að sækja. Hinn tvítugi Kimi Antonelli fagnar sigrinum í dag. EPA / Daniel Dal Zennaro Eftir spennandi einvígi við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, George Russell, kom Antonelli fyrstur í mark, Russell varð annar og Max Verstappen þriðji. Antonelli er fyrsti Ítalinn í 60 ár til að vinna á Monza og er nú með 267 stig gegn 201 stigi Russell. 6. september 2026 kl. 17:12INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ökumanns köfunarbíls leitað erlendis – köfuðu einn og hálfan kílómetra eftir efnunum Bíll búinn fullkomnum köfunarbúnaði kom til landsins nokkru áður en súrálsskip með 106 kílóum af kókaíni lagðist að bryggju í Straumsvík. Brasilískir fíkniefnakafarar þurftu tvær tilraunir til að kafa langa leið og opna sjókistu skipsins. 6. september 2026 kl. 16:55ÍÞRÓTTIR Fótbolti Lakari markatala skildi Stjörnuna eftir í neðri hlutanum ÍA og Keflavík verða í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta eftir tvískiptingu deildarinnar en Stjarnan og Valur í neðri hlutanum. Þetta varð ljóst eftir lokaumferð hefðbundnu deildarkeppninnar í dag. 6. september 2026 kl. 16:47ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Margrét Danadrottning lögð inn á spítala Margrét Þórhildur Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús vegna blóðsöfnunar í mjöðm. Þetta er í þriðja sinn á árinu sem drottningin er lögð inn á sjúkrahús. 6. september 2026 kl. 16:44INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Flúði lögreglu á Hopp-deilibíl og skemmdi bíla Lögregla veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í Reykjavík stuttu eftir hádegi í dag. Ökumaðurinn ók utan í aðra bíla á ferð sinni. 6. september 2026 kl. 16:16ERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Stefnir í stórsigur AfD í Saxlandi-Anhalt Harðlínuflokkurinn AfD meira en tvöfaldar fylgi sitt frá því í síðustu kosningum í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt samkvæmt útgönguspám. Kjörstöðum var lokað klukkan 16 að íslenskum tíma. 6. september 2026 kl. 15:43INNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál „Nánast útilokað“ að koma í veg fyrir útbreiðslu fíkniefna á Litla-Hrauni Dómsmálaráðherra segir nægar lagalegar heimildir til staðar til að sporna við fíkniefnanotkun í fangelsum. Aðbúnaður á Litla-Hrauni, stærsta fangelsi landsins, sé hins vegar með þeim hætti að þar sé erfitt að stemma stigu við útbreiðslu fíkniefna. 6. september 2026 kl. 15:34ÍÞRÓTTIR Handbolti „Aldrei fengið svona langan tíma til að hugsa um einn fyrri hálfleik“ Afturelding vann Víking í fyrstu umferð í Olís deild karla í handbolta í dag, tveimur dögum eftir að leikurinn hófst. Hætta þurfti leik á föstudagskvöld vegna rafmagnsleysis í Mosfellsbæ og var seinni hálfleikuri