Innlent | Morgunblaðið | 7.9.2026 | 5:58 Rannsakað sem alvarlegt atvik Drengurinn var vistaður á öryggisgangi undir myndavélaeftirliti en náði að smygla inn kveikjara. Aðeins er heimild til yfirborðsleitar á Stuðlum en starfsfólk hefur kallað eftir heimild til að framkvæma ítarlegri leit. mbl.is/Karítas Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ „Það þarf að grípa inn í strax“ Áfengi gert „meira aðlaðandi og saklausara“ Grunnskólar íhugi notkun áfengismæla » Fleiri tengdar fréttir Tilraun drengs, sem vistaður var á neyðarvistun Stuðla, til íkveikju í ágústmánuði er rannsökuð sem alvarlegt atvik hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV). Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) tilkynnti um málið, líkt og lög kveða á um. Þetta staðfestir Herdís Gunnarsdóttir forstjóri GEV í samtali við Morgunblaðið. Atvikið er einnig til rannsóknar hjá lögreglu. Greint var frá því á föstudag að drengnum hefði tekist að kveikja eld í dýnu í herbergi sínu en snarræði starfsfólks hefði komið í veg fyrir að ekki fór verr. Hann var vistaður á svokölluðum öryggisgangi undir myndavélaeftirliti. Takmörkuð leitarheimild Aðeins eru tæp tvö ár síðan 17 ára drengur lést í bruna og starfsmaður slasaðist alvarlega þegar eldur kviknaði á sama stað. Frétt af mbl.is Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Atvikið sem um ræðir nú átti sér stað um miðjan ágúst en drengnum tókst að smygla kveikjara inn á neyðarvistun. Aðeins er heimild til yfirborðsleitar á börnum og unglingum sem þangað koma en starfsfólk hefur lengi kallað eftir heimild til að framkvæma ítarlegri leit í þeim tilgangi að stuðla að bættu öryggi skjólstæðinga og starfsfólks. Kveikjarar og fíkniefni Herdís segir við Morgunblaðið að líkt og fram komi í skýrslu GEV frá því í apríl síðastliðnum um frumkvæðisathugun á meðferðarheimilum BOFS hafi börn á meðferðarheimilum sum hver komið höndum yfir hluti sem þeim er bannað að hafa, eins og kveikjara og fíkniefni. Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað ítarlega um það hvernig börn hafa ítrekað smyglað fíkniefnum inn á meðferðarheimili og jafnvel komist þar í harðari efni en þau höfðu prófað áður. „GEV veitti BOFS tilmæli um að bæta úr verklagi er varðar smygl á ólöglegum hlutum, er ógna öryggi barnanna, inn á meðferðarheimilin. Hjá BOFS skal úrbótum vera lokið í nóvember og mun GEV fylgja þeim eftir,“ segir Herdís. Unnið að betra verklagi GEV hafi vitneskju um að hjá BOFS sé unnið að bættu verklagi. Það sé aftur á móti að vissu leyti snúið að fyrirbyggja smygl á skaðlegum hlutum inn á meðferðarheimili fyrir börn og ungmenni, þar sem núverandi lagaumhverfi takmarki heimildir til leitar sem geti talist íþyngjandi eða þvingandi. Frétt af mbl.is Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát „Því er afar mikilvægt að leita lausna og mögulega breyta verklagi samhliða því að veita heimildir til að nýta minna íþyngjandi tækni við að leita á börnunum og tryggja þannig enn betur öryggi þeirra,“ segir hún. Notkun ætti að vera óheimil Þá liggur fyrir að viðbyggingin þar sem neyðarvistun Stuðla er til húsa hefur ekki fengið öryggis- og lokaúttektarvottorð þar sem brunahólfandi hurðir samræmast ekki hönnunargögnum og ætti notkun húsnæðisins því að vera óheimil. Byggingarfulltrúi ákvað aftur á móti í vor að heimila notkun tímabundið með bráðabirgðaráðstöfunum, sem felast meðal annars í aukinni mönnun, og hefur umboðsmaður barna krafist frekari útskýringa á því. Telur umboðsmaður mikilvægt að það liggi fyrir með skýrum hætti hvernig öryggi barna á Stuðlum sé tryggt, enda sé um að ræða börn sem eru frelsissvipt. Fáðu aðgang að þessari grein Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn. Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar. – það er ókeypis og án skuldbindingar. Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ „Það þarf að grípa inn í strax“ Áfengi gert „meira aðlaðandi og saklausara“ Grunnskólar íhugi notkun áfengismæla » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Varað við öflugum vindhviðum Reykur frá bakaraofni og hótelið reykræst Um 40% handtekinna erlend Gullfallegur stigi vekur athygli Sleit hásin eftir að hafa farið úr axlarlið Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bilun í kerfi Teya „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Mest lesið Í gær Í vikunni „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki Ellefu ökumenn stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Skemmtileg uppskerutíð í sveitinni „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Varað við öflugum vindhviðum Reykur frá bakaraofni og hótelið reykræst Um 40% handtekinna erlend Gullfallegur stigi vekur athygli Sleit hásin eftir að hafa farið úr axlarlið Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Eðlilegt að íbúar byggðarinnar fari eins og aðrir Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur „Þetta er bara byrjunin“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki Ellefu ökumenn stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Skemmtileg uppskerutíð í sveitinni „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar