Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnir fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 á blaðamannafundi í fjármálaráðuneytinu sem hefst kl. 9 í dag. Ríkisstjórnin hefur verið afdráttarlaus um að hún hyggist ná fram hallalausum fjárlögum árið 2027. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í pontu Alþingis í júní sl. að ríkisstjórnin ætlaði að standa við það markmið „sama hvað það kostar“. Daði sagði í Vikulokunum á laugardaginn að í fjárlagafrumvarpinu sé gert ráð fyrir afgangi sem „hleypur á einhverjum milljörðum“. Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031, sem var kynnt 26. mars sl., gerði ráð fyrir að ríkissjóður (A1-hluti) myndi skila 1,1 milljarði króna í afgang á næsta ári. Í fjármálaáætluninni var m.a. boðað að auka skattheimtu á fyrirtæki í fjármálageiranum, að endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði yrði lækkað frekar, og að aðgangur að baðlónum verði fært úr neðra virðisaukaskattþrepi í það efra. Hér er embed: