Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þrjár góðar landanir hjá Fisk Seafood

Read Full Article →

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með tæp 76 tonn af fiski. Frá þessu og tveimur öðrum löndunum er sagt á vef Fisk Seafood í dag. Í afla Sigurborgar voru um 20 tonn af þorski og svipað magn af ýsu, um 13 tonn af skarkola og um 9 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum. „Sigurborg byrjaði túrinn á Flökunum en færði sig svo vestur fyrir á Grunnkant og vestur af Mána, en endaði svo aftur á Flökunum og á Flákakanti,“ segir á vef Fisk Seafood. Farsæll með 70 tonn til Grundarfjarðar Síðan kemur fram að Farsæll SH 30 hafi komið til löndunar í Grundarfirði í morgun með 70 tonna afla. „Þar af voru um 23 tonn af ýsu, um 19 tonn af þorski og um 13 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum. Farsæll hélt sig að mestu á Flökunum en tók einnig nokkur hol á Flákakanti og í kringum Bjarg.“ Drangey landar 145 tonnum Þá segir einnig frá því á fisk.is að Drangey SK 2 kom í land við Sauðárkrókshöfn í gær og að landað sé úr skipinu í dag. Drangey hafi komið með um það bil 145 tonn af fiski, þar af um 125 tonn af þorski, um 6 tonn af ýsu og um 5 tonn af ufsa. „Drangey hóf veiðiferðina austur á Digranesflaki þar sem þeir lentu í góðri veiði, að sögn Guðmundar Ágústs Guðmundssonar, stýrimanns. Þeir reyndu víða við ýsu og ufsa en veiðin var treg í þeim tegundum, hinsvegar var góð veiði í þorski og blíðuveður um allan sjó,“ segir á vef Fisk Seafood .

Share this article