- What: Chinese authorities are injecting 54 billion dollars into state banks and insurance companies.
- Impact: Aimed at stabilizing the financial system and economy.
Kínversk stjórnvöld hyggjast leggja átta ríkisbönkum og tryggingafélögum til rúmlega 54 milljarða dala til að styðja við fjármálakerfi landsins og blása lífi í hagkerfið. Á vef BBC segir að verkefnið, sem var tilkynnt í gær, verði leitt af kínverska fjármálaráðuneytinu. Fjármagnið fer til þriggja stórra banka og fimm tryggingafélaga. Ríkismiðlar í Kína segja að aðgerðin muni styrkja rekstrarhæfi þeirra og viðnámsþrótt gagnvart áhættu. Aðgerðin er nýjasta tilraun stjórnvalda til að blása lífi í hagkerfið, sem stendur nú frammi fyrir mikilli viðskiptaspennu við Vesturlönd, hækkandi eldsneytiskostnaði vegna stríðsins í Íran og fækkun fólks á vinnualdri, meðal annars vegna öldrunar þjóðarinnar. Hagvöxtur í Kína hægði verulega á sér á öðrum ársfjórðungi og jókst landsframleiðsla aðeins um 4,3% samkvæmt opinberum tölum. Stjórnvöld lækkuðu einnig hagvaxtarmarkmið sitt í mars í 4,5%, sem er lægsta markmið síðan 1991.