Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Báðir grunuðu í Kársnesmálinu í haldi hérlendis

Read Full Article →

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sótti sakborning í manndrápsmáli í Kársnesi til Póllands á föstudag. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, staðfestir það. Sakborningurinn, pólskur ríkisborgari, er í gæsluvarðhaldi. Mbl.is greindi fyrst frá. Ráðist var á mann á fimmtugsaldri á Kársnesi í Kópavogi 9. ágúst. Hann lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Málið er talið tengjast skipulagðri brotastarfsemi og Europol hefur aðstoðað við rannsóknina. Íslenskir lögreglumenn sóttu annan sakborning til Spánar í lok ágúst, sá er einnig pólskur ríkisborgari líkt og sá sem er látinn. Íslenskur ríkisborgari var einnig í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. Það rann út 31. ágúst og var ekki framlengt.

Share this article