Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Og hoppaðu upp í...“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.9.2026 | 20:55 „Og hoppaðu upp í...“ Gunnar Helgason skýtur föstum skotum að Loga, Þorgerði og Kristrúnu. Ljósmynd/Aðsend Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Svakalegt högg fyrir rithöfunda Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Kæru- og úrskurðarnefndir verði undir sama þaki » Fleiri tengdar fréttir Gunnar Helgason barnabókahöfundur hjólar í stjórnvöld í færslu og segir ekkert að marka diguryrði ríkisstjórnarinnar um aukið læsi og menntun barna. Ástæðan er 82,2 milljóna króna lækkun framlaga til Bókasafnssjóðs í fjárlögum fyrir næsta ár. Þau voru áður 224,5 milljónir króna en nú 142,3 milljónir. Framlag til sjóðsins var hækkað í fyrra um 78,5 milljónir króna. Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambandsins sagði við mbl.is fyrr í kvöld að lækkunin kæmi sér einkar illa fyrir barnabókahöfunda. Gunnar vandar Loga Einarssyni, menn­ing­ar-, ný­sköp­un­ar- og há­skólaráðherra, ekki kveðjurnar og segist vera kominn með nóg af kurteisi. Frétt af mbl.is Svakalegt högg fyrir rithöfunda Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólamálaráðherra. mbl.is/Anton Brink „Sjálfur ertu með löngutöng á lofti“ „Þakka þér kærlega fyrir. Og hoppaðu upp í … (Ég nenni ekki að vera kurteis enda ertu með löngutöng á lofti sjálfur. Þegar stjórnmálafólk telur að það geti rifið af okkur tekjurnar aftur og aftur ... ÞAÐ er dónaskapur!!)“ Þetta segir Gunnar sem skýtur föstum skotum að yfirvöldum. „Það er greinilega ekkert að marka neitt sem þið segið þegar þið talið um að auka læsi og menntun barna. Því að ef það er stöðugt hoggið í tekjurnar mun verða atgervisflótti úr okkar geira. Menningin býr til 17 milljarða í tekjur fyrir ríkið. Og þið bara verðið að klípa launin af lægst launuðu stétt landsins: barnabókahöfundum.“ Undir lok færslunnar segir hann að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra megi skammast sín. Hann segist þó geta treyst á Lilju Dögg Alfreðsdóttur, formann Framsóknarflokksins og fyrrum menntamálaráðherra, og Bryndísi Haraldsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokksins. Frétt af mbl.is Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Sakar Loga um stjórnarskrárbrot Gunnar spyr Loga hvort hann hafi gleymt fyrra samtali þeirra sem hafi átt sér stað þegar barnabókahöfundar lögðu fram greinargerð frá lögmannsstofunni Rétti. Hún hafi verið þess efnis að fyrri lækkun á sjóðnum árið 2014, af hendi þáverandi fjármálaráðherra Bjarna Benediktssonar, hafi verið brot á stjórnarskrá Íslands. „Þér til upprifjunar var þetta svona: Hljóðbókasafnið og útlán þess voru sett undir Bókasafnssjóð árið 2021 vegna þess að það að lána bækur í hljóðbókarformi - án þess að greiðslur fengust fyrir - var stjórnarskrárbrot. (72. grein) Lilja Alfreðsdóttir hækkaði þá upphæðina til samræmis við fjölgun útlána. Bjarni Ben lækkaði hana sem sagt og Réttur komst að því að það væri sjórnarskrárbrot. Þú hækkaðir upphæðina í fyrra en lækkar hana aftur nú. Af hverju? Þú ert að brjóta stjórnarskrána, að mati Réttar. Og þú veist það,“ segir Gunnar. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra kynnir fjárlagafrumvarpið ásamt Kristrúnu Frostadóttur. mbl.is/Eggert Komi verst við barnabókahöfunda Gunnar segir lækkun framlaganna koma verst við barnabókahöfunda. Fimm vinsælustu höfundarnir á bókasöfnunum skrifi barnabækur. Hann bendir á að markhópurinn sé þar að auki minni, stundum aðeins nokkrir árgangar, og því vonlaust að lifa á bóksölunni einni. Hann segist sjálfur hafa verið mjög lánsamur að hafa fengið listamannalaun ólíkt flestum barnabókahöfundum. „Og nú ætlarðu að taka af 36% prósent af þeim tekjum sem við fáum fyrir höfundarverk okkar í útláni,“ segir hann. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Svakalegt högg fyrir rithöfunda Kristrún: „Gott fyrir Ísland“ Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Gjaldhækkanir ýti undir verðbólgu Kæru- og úrskurðarnefndir verði undir sama þaki » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Losnar ekki úr varðhaldi á næstunni Breiðablik missteig sig aftur – Víkingur af botninum Aðkoma ríkisins ekki á kostnað hallaleysis Villiöndin sem stóð föst í koki menningarelítu landsins „Og hoppaðu upp í...“ Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Losnar ekki úr varðhaldi á næstunni Breiðablik missteig sig aftur – Víkingur af botninum Aðkoma ríkisins ekki á kostnað hallaleysis Villiöndin sem stóð föst í koki menningarelítu landsins „Og hoppaðu upp í...“ Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkun kílómetragjalds hafi legið fyrir „í mörg ár“ Hlutfall fyrstu kaupenda ekki meira í 19 ár Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article