Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Níu hafa fundist látnir eftir sprengingu í herstöð og fimm enn leitað

This article describes a physical security incident involving the detonation of stored explosives at a military base, resulting in casualties. The incident is being investigated as a homicide, with a parallel investigation into the storage protocols and quantity of the explosive material. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patch, or digital workaround is provided in the source material.
Read Full Article →

Nú er vitað að níu fórust í tveimur öflugum sprengingum í herstöð í borginni Viacha um þrjátíu kílómetra frá La Paz, höfuðborg Bólivíu, á föstudaginn var. Allir hinna látnu eru hermenn, liðsforingi og átta ungir menn að sögn varnarmálaráðuneytisins. Af þeim 84 sem slösuðust liggur 31 enn á sjúkrahúsi samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytisins. Fimm hermanna er enn saknað. Leit stendur enn yfir og í gær fjarlægðu slökkviliðsmenn og björgunarsveitir heilmikið brak undir vökulu auga herlögreglunnar. Sprengiefni sem hafði verið gert upptækt var geymt í herstöðinni og forsetinn Rodrigo Paz segir það sem eftir var hafa verið flutt annað í öryggisskyni. Flestir þeirra 240 hermanna sem hafast við í herstöðinni voru við skyldustörf annars staðar þegar atvikið varð. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni þótt málið sé rannsakað sem manndráp. Rannsókn er einnig hafin til að kanna hver ber ábyrgð á því hvernig sprengiefnið var geymt og hversu umfangsmikið það var.

Share this article