Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vinirnir sem hurfu í Himalaja

Read Full Article →

Kristinn Rúnarsson og Þorsteinn Guðjónsson voru meðal fremstu fjallamanna landsins þegar þeir 27 ára gamlir lögðu upp í örlagaríkan leiðangur á hinn 7161 metra háa tind Pumori við landamæri Nepals og Kína. Í ferðinni gerðust óvæntir atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Æskuvinirnir skiluðu sér ekki heim. Röð tilviljana gerði það að verkum að þetta gamla mál kom aftur upp á yfirborðið árið 2018. Hinn 92 ára gamli Rúnar Guðbjartsson, faðir Kristins, segir söguna í sjónvarpsþættinum Á gamans aldri. Æskuvinirnir Þorsteinn Guðjónsson og Kristinn Rúnarsson reyndu að klífa fjallið Pumori í Nepal árið 1988 en skiluðu sér aldrei heim. 30 árum síðar opnaðist þetta gamla sár aftur. Í hlaðvarpsþættinum Mannshvörfin í Himalaja heyrum við í vinum Þorsteins og Kristins sem voru með þeim í leiðangrinum. Í dagbókum þeirra eru ítarlegar lýsingar á ferðalaginu og því sem gerðist þegar síðast sást til þeirra. Ættingjar Þorsteins og Kristins lýsa áhrifunum sem málið hefur haft á fjölskyldur þeirra. Æskuvinirnir Þorsteinn Guðjónsson og Kristinn Rúnarsson reyndu að klífa fjallið Pumori í Nepal árið 1988 en skiluðu sér aldrei heim. 30 árum síðar opnaðist þetta gamla sár aftur.

Share this article