Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tveir nýliðar í æfingahóp landsliðsins fyrir EM

Read Full Article →

Arnar Pétursson þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta valdi 22 leikmenn í æfingahóp fyrir Evrópumótið. Tveir nýliðar eru í hópnum, miðjumaðurinn Embla Steindórsdóttir og línumaðurinn Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir. Hópurinn kemur saman á æfingaviku hérlendis sem hefst 21. september. Síðan mætir Ísland Póllandi í tveimur æfingaleikjum ytra fyrir mót. Leikirnir verða í október en leiktími liggur ekki fyrir. Erfiður riðill Ísland er í sterkum riðli með Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu. Riðill Íslands fer fram í borginni Oradea í Rúmeníu. Mótið er haldið í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi og stendur yfir frá 3. til 20. desember. Mótið er sýnt á RÚV.

Share this article