Innlent | mbl | 8.9.2026 | 9:19 | Uppfært 9:46 Þrír ákærðir fyrir manndrápstilraun Aðalmeðferð er við það að hefjast. mbl.is Setja bókamerki Aðalmeðferð í svokölluðu Höfðatorgsmáli hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þrír karlmenn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps vegna árásar í bílakjallara undir Höfðatorgi aðfaranótt 17. mars síðastliðins. Mennirnir, Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed, eru samkvæmt ákæru sakaðir um að hafa í sameiningu reynt að svipta karlmann lífi. Tveir þeirra eru mættir í réttarsal til að svara til saka en Qossay hlustaði í gegnum fjarfundarbúnað. Túlkar eru staddir í salnum. Annar þýðir á arabísku fyrir tvo þeirra en einn vildi fá enskan túlk. Samkvæmt ákæru ók Kareem bifreið af miklum hraða á manninn þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll síðan til jarðar. Þar er Qossay sagður hafa barið hann ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi og Mohamed í kjölfarið stungið hann í vinstri rasskinn með stunguvopni. Kom lífshættulega særður á bráðamóttöku Brotaþolinn hlaut alvarlega áverka í árásinni, meðal annars lungnamar á báðum lungum, brot á upphandleggsbeini og blóðþurrðarlost. Í læknisvottorði sem liggur fyrir í málinu kemur fram að maðurinn hafi komið á bráðamóttöku í lífshættulegu losti og að hann hefði látist hefði hann ekki fengið þá meðferð sem honum var veitt á vettvangi og á bráðamóttöku. Málið vakti mikla athygli þegar rannsókn þess hófst í mars. Á bilinu 20 til 30 manns munu hafa verið í bílakjallaranum þegar átökin brutust út og sést hluti atburðarásarinnar á upptökum úr eftirlitsmyndavélum. Tveir neituðu sök Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní. Kareem og Mohamed mættu þá fyrir dóm og neituðu báðir sök. Qossay mætti hins vegar ekki við þingfestinguna. Verjandi hans greindi þá frá því að hann væri staddur í Jórdaníu og að samband við hann væri stopult. Brotaþoli gerir tíu milljóna króna miskabótakröfu á hendur ákærðu auk tæplega 100 þúsund króna skaðabótakröfu og lögmannskostnaðar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Reyna að fegra sláandi niðurstöður Liverpool skrifar undir verðmætasta samning sögunnar Spænskum vélhjólamönnum settar reglur Þrír ákærðir fyrir manndrápstilraun Landsliðsmaður drullar yfir ríkisstjórnina Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur árum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Lækkar heimildir en tímalínan helst óbreytt Sigmundur Davíð: „Staðfesting uppgjafar“ Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Bilið breikkar mest á Íslandi Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september „Og hoppaðu upp í...“ Sól um land allt og hitinn gæti náð 18 stigum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Reyna að fegra sláandi niðurstöður Liverpool skrifar undir verðmætasta samning sögunnar Spænskum vélhjólamönnum settar reglur Þrír ákærðir fyrir manndrápstilraun Landsliðsmaður drullar yfir ríkisstjórnina Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur árum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Hækkun kílómetragjalds hafi legið fyrir „í mörg ár“ Sigmundur Davíð: „Staðfesting uppgjafar“ Hækkanir skella á sjúklingum Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Bilið breikkar mest á Íslandi Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september „Og hoppaðu upp í...“ Sól um land allt og hitinn gæti náð 18 stigum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið