Tollar á bandarískar vörur sem yfirvöld í Kanada tilkynntu um fyrir rúmum tveimur vikum taka gildi í dag. Mark Carney forsætisráðherra Kanada tilkynnti um tollana eftir að viðræður við Bandaríkin fóru út um þúfur og Bandaríkin settu tolla á ákveðnar kanadískar vörur, þar á meðal hokkíkylfur og steinsteypu. Tollarnir sem Kanada setur á eru ýmist 15%, 25% eða 50% og eru meðal annars lagðir á stál- og álframleiðslu og mjólkurvörur. Hætt var við að setja tolla á sjávarafurðir eins og upphaflega stóð til. Engin merki eru um að þessu viðskiptastríði Bandaríkjanna og Kanada sé að linna. Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði því í gær í færslu á Truth Social að stöðva sölu á Bombardier-flugvélum sem framleiddar eru í Quebec nema framleiðslan verði flutt til Bandaríkjanna. Hann sagði ekkert um hvernig hann ætlaði að fara að því. Þúsundir slíkra véla eru notaðar í farþegaflug í Bandaríkjunum. Bombardier svaraði með yfirlýsingu þar sem meðal annars var bent á að birgðakeðja fyrirtækisins héldi uppi hátt í 3000 bandarískum fyrirtækjum í 47 ríkjum Bandaríkjanna. Engar viðræður hafa átt sér stað milli Bandaríkjanna og Kanada um tollasamkomulag eftir að slitnaði upp úr þeim í ágúst.