Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB opnar á samruna stórra fyrirtækja

Read Full Article →

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins reynir nú að senda evrópsku atvinnulífi merki um að það sé opnara fyrir því að leyfa samruna stórra fyrirtækja. Með því horfir sambandið til þess að liðka fyrir fjárfestingu og nýsköpun ásamt því að efla afhendingaröryggi og hjálpa evrópskum fyrirtækjum í samkeppni við bandarísk og kínversk fyrirtæki. Anthony Whelan, sem stýrir samkeppnissviði framkvæmdastjórnarinnar, segir í viðtali við Financial Times að samrunaaðilar ættu að færa rök fyrir þeim ávinningi sem slíkir samrunar gætu haft í för með sér. Whelan, sem tók við starfinu í apríl, sagði að aukin áhersla á mikilvægi stærðarhagkvæmni geti skapað skilyrði fyrir að til að verði evrópskir „sigurvegarar“ (e. champions) á sínum sviðum. Þessar breyttu áherslur eigi að stuðla að því að evrópsk fyrirtæki geti skalað upp starfsemi sína í auknum mæli, þróað betri vörur og veitt betri þjónustu að hans sögn. Jafnframt stuðli þetta að betra afhendingaröryggi. Í umfjöllun FT segir að ummæli Whelan séu skýrasta vísbendingin til þessa að framkvæmdastjórnin sé að endurmeta afstöðu sína til samþjöppunar til að bæta samkeppnishæfi evrópsks atvinnulífs. Breytt viðhorf fylgir í kjölfar þess að Mario Draghi, fyrrverandi forseti Seðlabanka Evrópu, varaði við því í frægri skýrslu að Evrópa þyrfti að efla samkeppnishæfni sína. Breytingarnar gætu blásið nýju lífi í samruna sem áður voru taldir ólíklegir til að fá grænt ljós frá samkeppnisyfirvöldum í Evrópu. Whelan sagðist ekki vita hversu mörg viðskipti myndu koma aftur til álita en bætti við að framkvæmdastjórnin væri nú að reyna að senda skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin til að taka betur tillit til röksemda um stærðarhagkvæmni.

Share this article