Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.9.2026 | 11:31 Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Sakborningur í Höfðatorgsmálinu kemur að dómssalnum í dag. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi Fá ekki afhent rafræn gögn í Höfðatorgsmálinu Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi » Fleiri tengdar fréttir Saksóknari sýndi við aðalmeðferð Höfðatorgsmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag myndbandsupptöku þar sem sjá má Land Rover-bifreið ekið af miklu afli á mann í bílakjallara undir Höfðatorgi. Á upptökunni sést maðurinn kastast nokkra metra af bifreiðinni áður en frekar er að honum veist. Stór dæld sést framan á bifreiðinni eftir ákeyrsluna. Í kjölfarið sjást tveir menn ráðast að manninum þar sem hann liggur eftir ákeyrsluna og veita honum högg og spörk. Maðurinn nær síðan að standa upp og tekur á rás, nokkuð reikull í spori. Skömmu síðar er annarri bifreið ekið í veg fyrir hann. Fjórir einstaklingar fara út úr henni og taka á rás á eftir manninum. Frétt af mbl.is Þrír ákærðir fyrir manndrápstilraun Neitar að hafa ekið bifreiðinni Myndbandsupptökurnar voru sýndar þegar skýrsla var tekin af Kareem M. M. Abufarhah, sem ákæruvaldið telur hafa verið undir stýri Land Rover-bifreiðarinnar þegar ekið var á manninn. Kareem var fyrstur sakborninga til að gefa skýrslu við aðalmeðferð málsins í dag. Hann neitar því hins vegar alfarið að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar þegar ekið var á brotaþola. Samkvæmt ákæru ók Kareem bifreiðinni á manninn af miklum hraða. Bifreiðin hafði verið tekin á leigu. Daglega í bílakjallaranum í þrjá mánuði Spurður um aðdraganda átakanna sagði Kareem að hann og vinir hans hefðu um þriggja mánaða skeið komið nánast daglega saman í bílakjallaranum undir Höfðatorgi. Kjallarinn hefði verið eins konar samkomustaður þeirra. Málsvörn hans er á þá leið að þrír menn hafi komið í bílakjallarann og ráðist á hópinn án tilefnis. Þeir sem fyrir voru hafi því verið að verja sig. Kareem sagðist ekki hafa þekkt hina sakborningana í málinu áður en til átakanna kom. Hann hefði hins vegar kynnst Mohamed Sayidali Ahmed í fangelsi. Hann sagðist jafnframt engin tengsl hafa við brotaþola og aldrei áður hafa séð mennina þrjá sem að hans sögn komu í bílakjallarann og réðust á hópinn. Saksóknari spilaði hins vegar hljóðskilaboð fyrir dóminum sem virtust sýna fram á samskipti Kareems við einn mannanna í aðdraganda átakanna. Á upptökunni má heyra mann sem virðist eiga eitthvað sökótt við Kareem og vilja fá eitthvað frá honum. Maðurinn hljómar reiður. Kareem hló þegar upptakan var spiluð og sagðist ekkert kannast við skilaboðin þótt þau hefðu borist í síma hans. Segir mennina hafa komið vopnaða Kareem sagði að hópurinn hefði verið í bílakjallaranum þegar símtal barst frá einum þeirra manna sem síðar komu þangað. Að hans sögn kom einn þeirra vopnaður sveðju og annar með hafnaboltakylfu. Sá þriðji hefði verið með hendur í vösum og Kareem kvaðst hafa talið að hann væri einnig vopnaður. Maðurinn með sveðjuna hefði ráðist að honum og tveimur vina hans. Kareem sagðist þá hafa verið inni í bifreiðinni. Spurður hvort hann hefði selt fíkniefni í bílakjallaranum neitaði hann því en viðurkenndi að hann „reykti“ stundum. Segir annan hafa sest undir stýri Kareem sagðist hafa ekið Land Rover-bifreiðinni í bílakjallarann en neitaði að hafa verið undir stýri þegar ekið var á brotaþola. Hann sagðist hafa skilið bifreiðina eftir í gangi þegar átökin hófust. Hann hefði farið úr henni en einhver annar sest undir stýri. Hann kvaðst ekki vita hver það hefði verið. Kareem sagðist hvorki hafa séð þegar ekið var á brotaþola né annað ofbeldi sem honum var beitt. Hann sagði að þegar átökin hófust hefði hann skipt um sæti við vin sinn og ætlað út úr bifreiðinni til að kanna hvað væri í gangi. Einhver annar hefði þá sest undir stýri. Ætlunin hefði verið að færa bifreiðina nær útgangi bílakjallarans. Sjálfur hefði hann farið út úr bílnum en haldið sig fjarri átökunum. Kareem sagðist síðar hafa komið aftur að bifreiðinni í kjallaranum og ekið henni út. Í framhaldinu hefði hann farið yfir í aðra bifreið og ekið í tvær til þrjár mínútur áður en lögregla handtók hann. Fimm hefðu verið í þeirri bifreið. Hann neitaði því að hafa reynt að komast undan lögreglu og sagðist hafa stöðvað bifreiðina strax. Spurður hvort einhverju hefði verið kastað út úr henni sagðist hann ekki vita til þess. Neitaði að svara hvernig hann greiddi fyrir bílinn Kareem neitaði jafnframt að selja fíkniefni. Þegar saksóknari spurði hann hvaðan tekjur hans kæmu sagðist hann engar tekjur hafa. Saksóknari spurði þá hvernig hann hefði haft efni á að taka Land Rover-bifreiðina á leigu. Kareem neitaði að svara þeirri spurningu. Saksóknari sýndi því næst myndskeið þar sem, að hans sögn, hafði verið klippt saman það sem varðaði þátt Kareems í málinu. Á upptökum úr bílakjallaranum má sjá fjölda fólks á hlaupum. Nokkrir sjást bera hluti sem virðast vera vopn, meðal annars hafnaboltakylfu og barefli sem erfitt er að greina nákvæmlega. Kareem var spurður hvort hann þekkti mennina á upptökunum. Hann brást illa við spurningunum og sagðist áður hafa boðist til að fara yfir upptökurnar með lögreglu og greina frá því hverjir sæjust þar. Lögregla hefði hins vegar ekki gefið honum tækifæri til þess. Spurður hvort hann hefði að jafnaði verið með vopn í bifreið sinni neitaði hann því. Saksóknari benti á að nokkrir úr hópnum sæjust vopnaðir á upptökunum þrátt fyrir þá málsvörn Kareems að árásin hefði komið þeim að óvörum. Tengdar fréttir Árás á Höfðatorgi Fá ekki afhent rafræn gögn í Höfðatorgsmálinu Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Hrottalegar lýsingar á árásinni á Höfðatorgi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Sagt upp störfum á Englandi Hávær flauta vakti Reykvíkinga: „Mannleg mistök“ Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar „Fyrst skaltu binda enda á hjónabandið, síðan skaltu elda hrísgrjón“ Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skorað á Þorgerði að segja af sér Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Hækkanir skella á sjúklingum Tæp 60% bóta fara til útlendinga Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Bilið breikkar mest á Íslandi „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Reyna að fegra sláandi niðurstöður Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Sagt upp störfum á Englandi Hávær flauta vakti Reykvíkinga: „Mannleg mistök“ Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar „Fyrst skaltu binda enda á hjónabandið, síðan skaltu elda hrísgrjón“ Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Við ætlum ekki að hvika frá þessu setta marki“ Reyna að fegra sláandi niðurstöður Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Bilið breikkar mest á Íslandi „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Reyna að fegra sláandi niðurstöður Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið

Share this article