Ríkisstjórnin hyggst takmarka vísitöluhækkanir á húsaleigu takmarkaðar við eitt skipti á ári með nýju frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra á komandi þingvetri. „Við ætlum að banna mánaðarlegar vísitöluhækkanir á húsaleigu. Leiga mun aðeins mega hækka einu sinni á hverju tólf mánaða tímabili,“ sagði Inga Sæland barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í morgun. „Það skapar meira öryggi og fyrirsjáanleika fyrir þann hóp sem oft hefur minnst á milli handanna og minnstan möguleika á að verjast skyndilegum hækkunum. Heimili fólks á ekki að vera vettvangur stöðugs fjárhagslegs ótta.“ Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, tilkynnti í apríl síðastliðnum um að vinna við frumvarpið væri hafið. Ríkisstjórnin hafði þegar bætt við ákvæði við húsaleigulögin í fyrra um að óheimilt sé að semja um að leigufjárhæð breytist á leigutímanum ef gerður hefur verið tímabundinn leigusamningur til 12 mánaða eða skemmri tíma. Sú breytingin tók gildi 1. janúar 2026. Þar var áður aðeins bannað að hækka leigu á leigutímanum þegar innan við tólf mánuðir voru eftir af tímabundnum leigusamningi. Með fyrirhuguðu frumvarpi ráðherra virðist því eiga að ganga enn lengra og banna alfarið mánaðarlegar vísitöluhækkanir á húsaleigu.