Innlent | mbl | 8.9.2026 | 18:59 Bókun 35, gegnsæi í sjávarútvegi og ný öryggislög Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Karítas Þorsteinn Ásgrímsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Logi bregst við gagnrýni: Bendir á 150 milljónir Reikningurinn sendur til vinnandi fólks Ræða gjaldamál og leigutryggingar við SA og ASÍ Höggvið á rafmagnshnút, Fljótagöng og sanngirnisbætur „Við ætlum ekki að hvika frá þessu setta marki“ » Fleiri tengdar fréttir Frumvarpið sem jafnan gengur undir heitinu bókun 35 verður lögð fram strax á þessum þingvetri að sögn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þetta verður í fjórða skiptið sem frumvarpið verður lagt fram og í þriðja skipti sem núverandi ríkisstjórn leggur það fram. Forystukonur ríkisstjórnarinnar kynntu áherslur sínar fyrir komandi þingvetur á blaðamannafundi í dag. Þorgerður fór yfir málaflokka ráðherra Viðreisnar. Hún sagði þar að EES-samstarfið yrði áfram lykilþráður í alþjóðamálum. Sagði hún það vera „stórt verkefni sem við þurfum að sinna vel. Ég mun strax leggja fram mikið réttindamál fyrir fólkið okkar, einstaklinga en líka fyrirtæki, sem tryggir þennan rétt á grunni EES-samningsins. Þið þekkið það frumvarp undir heitinu bókun 35.“ Talaði hún svo um samstöðu í þessum efnum: „Síðan verður lögð rík áhersla á og ég hef þegar verið í sambandi við atvinnulífið til að standa vel að EES-samstarfinu. Ég vil sérstaklega fagna samstöðu, þverpólitískri samstöðu, að sinna öflugri hagsmunagæslu, hvort sem það er á vettvangi EES-samningsins, eða við önnur ríki vestanhafs eða austan,“ og vísaði þar væntanlega til umræðna sem fóru af stað eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í síðasta mánuði, en þar lásu þau Þorgerður og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, afar ólíkt í afstöðu þjóðarinnar til málsins. Frétt af mbl.is Hart tekist á um bókun 35 Frétt af mbl.is Um hvað snýst þessi bókun 35? Varpa á betra ljósi á eignarhaldið Þorgerður boðaði að öðru leyti frumvarp til auka gegnsæi í sjávarútvegi. „Við viljum skýrari yfirsýn og varpa ljósi á eignarhald og ég held að umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu hafi verið að kalla það fram,“ sagði hún og tók fram að atvinnuvegaráðherra myndi leggja slíkt frumvarp fram í vetur. Þá sagði hún að samkeppnislög yrðu endurskoðuð sem og samrunareglur og að styrkja ætti Samkeppniseftirlitið og bæta neytendavernd. Sagði hún það meðal mikilvægustu málefna vetrarins að verja almannahagsmuni og tryggja heilbrigða samkeppni með þessum aðgerðum. „ Við eigum að læra af sögunni“ Hún boðaði jafnframt að vandað yrði betur til í undirbúningi að opinberum fjárfestingum þegar ráðist er í stór verkefni. „Það þýðir betri undirbúningur, skýrari verkefnastjórnun og meiri agi áður en ráðist er í stór verkefni fyrir almannafé. Við eigum að læra af sögunni,“ sagði Þorgerður. Þorgerður minntist svo á frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á hegningarlögum sem þegar hefur verið fjallað um. Er frumvarpinu meðal annars ætlað að taka betur á skipulagðri glæpastarfsemi, en frumvarpið hefur jafnframt fengið talsverða gagnrýni. Að lokum sagði hún ný heildarlög um almannavarnir á leiðinni sem og ný öryggislög. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Logi bregst við gagnrýni: Bendir á 150 milljónir Reikningurinn sendur til vinnandi fólks Ræða gjaldamál og leigutryggingar við SA og ASÍ Höggvið á rafmagnshnút, Fljótagöng og sanngirnisbætur „Við ætlum ekki að hvika frá þessu setta marki“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Harry og Meghan í uppnámi Í beinni: Real yfir í stórleiknum Guðjón Valur að fá íslenskan landsliðsmann? Bókun 35, gegnsæi í sjávarútvegi og ný öryggislög Jákvætt að borgarbörnin skori betur Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kveikti í húsi í miðbænum og komst undan Þórunn: Mál að linni Höggvið á rafmagnshnút, Fljótagöng og sanngirnisbætur Icelandair seinkar og aflýsir flugi til London Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Hávær flauta vakti Reykvíkinga: „Mannleg mistök“ Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skorað á Þorgerði að segja af sér Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Nýjast á mbl.is » Harry og Meghan í uppnámi Í beinni: Real yfir í stórleiknum Guðjón Valur að fá íslenskan landsliðsmann? Bókun 35, gegnsæi í sjávarútvegi og ný öryggislög Jákvætt að borgarbörnin skori betur Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höggvið á rafmagnshnút, Fljótagöng og sanngirnisbætur Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Inga: Sárara en tárum taki Icelandair seinkar og aflýsir flugi til London Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Hávær flauta vakti Reykvíkinga: „Mannleg mistök“ Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skorað á Þorgerði að segja af sér Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni