Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Um 200 virðast hafa selt bréf úr kaupréttinum strax

Read Full Article →

Viðskipti með hlutabréf Íslandsbanka í ágúst benda til þess að allt að 199 starfs­menn bankans hafi selt hluta­bréf sem þeir keyptu við nýtingu kaupréttar sam­kvæmt kaupréttaráætlun bankans. Þegar við­skipti frá 14. ágúst, þegar kaupréttirnir voru nýttir, eru skoðuð má finna við­skipti sem sam­svara fullri nýtingu kaupréttar hjá 199 starfsmönnum. Ekki er þó hægt að úti­loka að fleiri starfs­menn hafi selt aðeins hluta þeirra bréfa sem þeir keyptu. Starfs­fólkið keypti sam­tals 6.397.210 hluti á 126,4 krónur á hlut fyrir tæp­lega 809 milljónir króna. Loka­gengi Ís­lands­banka 14. ágúst var 143,8 krónur og var markaðsvirði bréfanna þá tæp­lega 920 milljónir. Mis­munurinn nam 111,3 milljónum króna. Miðað við fulla nýtingu kaupréttar hjá 199 starfsmönnum, eða 11.867 hluti á mann, sam­svara við­skiptin alls 2.361.533 hlutum. Kaup­verð þeirra var um 298,5 milljónir króna. Hefðu bréfin öll verið seld á verði nálægt loka­gengi 14. ágúst hefði sölu­verðmætið verið um 339 milljónir og ávinningurinn rúmar 41 milljón króna fyrir skatt. Þess ber þó að geta að fjár­hæðirnar eru viðmið, enda liggur ekki fyrir nákvæmt sölu­verð einstakra við­skipta og ekki er hægt að stað­festa af gögnum Kaup­hallarinnar að öll við­skiptin hafi í reynd verið sala starfs­manna bankans. Sala hófst strax Við­skiptin voru lang­mest fyrstu dagana eftir að kauprétturinn var gerður upp. Þann 14. ágúst voru við­skipti sem sam­svara fullri nýtingu kaupréttar hjá 85 starfsmönnum, eða 1.008.695 hlutum. Næstu tvo við­skipta­daga sam­svöruðu við­skiptin fullri nýtingu hjá 31 og 24 starfsmönnum til viðbótar. Á fyrstu þremur við­skipta­dögunum voru því við­skipti sem sam­svara fullri nýtingu kaupréttar hjá alls 140 starfsmönnum. Eftir það dró úr um­fanginu en sam­bæri­leg við­skipti áttu sér stað nær alla við­skipta­daga út ágúst. Starfs­maður sem fullnýtti 1,5 milljóna króna há­markið gat keypt 11.867 hluti fyrir 1.499.989 krónur. Í við­skiptalistanum má greina við­skipti sem sam­svara fullri nýtingu kaupréttar hjá 199 starfsmönnum, ýmist í einni færslu eða fleiri sem saman mynda nákvæm­lega 11.867 hluti. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér og fréttina í heild hér .

Share this article