Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.9.2026 | 21:41 Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Um fáar jarðir hefur verið þrætt jafnmikið í gegnum tíðina og Vatnsenda við Elliðavatn. mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Kópavogsbær hefur hafnað því að gera breytingar á aðal- og deiliskipulagi sínu til að heimila byggingu 18 nýrra einbýlishúsa á Vatnsendalandinu. Þetta var niðurstaðan þegar umsókn þess efnis var tekin fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs bæjarins í gær. Vatnsendalandið er líklega sú eign sem mest hefur verið þrætt um hér á landi en fjöldi dómsmála hefur fallið á síðastliðnum áratugum um eignarhald yfir henni. Umdeild erfðaskrá hefur gert það að verkum að öll helstu eignarréttindi landsins hafa erfst til elsta sonar hverju sinni og hvílir sú kvöð á ábuanda hverju sinni að stunda þar búskap. Frétt af mbl.is Vatnsendamáli lokið og fargi létt af Kópavogsbæ Sjálfstæðismenn klofnuðu í afstöðu sinni Ábúandi á Vatnsenda er Magnús Pétur Hjaltested sem er rétt rúmlega tvítugur en hann tók við jörðinni eftir fráfall föður síns, Þorsteins Hjaltested, árið 2018. Sótt var um leyfi til að breyta skipulaginu fyrir hönd Magnúsar Péturs. Hart var tekist á um umsóknina á fundinum en að endingu fór svo að umsókninni var hafnað með atkvæðum þriggja sjálfstæðismanna, þeirra Hjördísar Ýrar Johnson, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur og Guðmundar Jóhanns Jónssonar. Andri Steinn Hilmarsson, fjórði sjálfstæðismaðurinn í ráðinu, sat hins vegar hjá og var ekki skrifaður fyrir bókunum samflokksmanna sinna. Frétt af mbl.is Verðmæti nýrra Vatnsendalóða hleypur á milljörðum Segir niðurstöðuna ekki í samræmi við stefnuna Í bókun þeirra sjálfstæðismanna sem höfnuðu umsókninni segir að breytt skipulag myndi fela í sér umtalsverða þéttingu á svæði sem nú er skilgreint sem opið svæði. Telja þeir þó mikilvægt að koma gatnagerð og tengdum innviðum í betra horf á svæðinu og að ástæða sé til þess að hraða aðgerðum fyrir veturinn sem tryggja umferðaröryggi á svæðinu. Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins og áheyrnarfulltrúi í ráðinu, lagði fram bókun þar sem hann harmar að umsókninni hafi verið hafnað. Hann segir niðurstöðuna skjóta skökku við stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem skilgreinir eignarrétt sem grundvallarmannréttindi sem beri að styrkja og vernda. „Miðflokkurinn telur að eðlilegra hefði verið að leyfa málinu að fara áfram í skipulagsferli, auglýsa tillöguna, kalla eftir umsögnum og meta umhverfisáhrif hennar eftir því sem við á. Sérstaklega er óviðunandi að höfnuninni fylgi hvorki tillaga um næstu skref né tímasett áætlun um þá heildstæðu stefnumótun sem vísað er til,“ segir í bókun Einars. Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fylgdi ekki línu samflokksmanna sinna. mbl.is/Sigurður Bogi Gagnrýna seinaganginn Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar í ráðinu sátu hjá við afgreiðslu málsins en þeir lögðu þó fram sameiginlega bókun þar sem gerður var fyrirvari við ákvörðun meirihlutans um að hafna umsókninni. Telja fulltrúarnir þörf á umbótum á svæðinu, meðal annars hvað varðar gatnagerð, lýsingu, fráveitu og umferðaröryggi, og gagnrýna þeir hve lengi málið var í vinnslu án þess að skýr niðurstaða lægi fyrir. „Vandaðri og markvissari málsmeðferð hefði getað komið í veg fyrir að svo miklum tíma og fjármunum yrði varið án niðurstöðu. Það er sérstaklega ámælisvert í ljósi þess að brýn úrlausnarefni á svæðinu, þar á meðal varðandi umferðaröryggi barna og uppbyggingu innviða, eru enn óleyst og ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í nauðsynlegar úrbætur,“ segir í bókuninni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Byrjar vel í nýju landi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Aukin skattbyrði á íbúðaframkvæmdir Segir kílómetragjaldið betri kost Átti leikmaður Arsenal að fá rautt? Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heimspressan fjallar um fund Long og Þorgerðar PISA í brennidepli: Danir tala um stórslys Þórunn: Mál að linni Kveikti í húsi í miðbænum og komst undan Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skorað á Þorgerði að segja af sér Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Nýjast á mbl.is » Byrjar vel í nýju landi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Aukin skattbyrði á íbúðaframkvæmdir Segir kílómetragjaldið betri kost Átti leikmaður Arsenal að fá rautt? Umræðan Farsæld í farvegi Sérlausn Íslands vegna bókunar 35 að engu höfð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bókun 35, gegnsæi í sjávarútvegi og ný öryggislög Kristrún um gjaldtöku: „Við lifum í breyttum heimi“ Tapa 100 milljónum á þremur árum Inga: Sárara en tárum taki Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skorað á Þorgerði að segja af sér Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni

Share this article