Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Frekari tafir á flugumferð á morgun

  • What: Technical issues disrupt flights in UK and Ireland
  • Impact: Causes flight cancellations and delays
Read Full Article →

Gera má ráð fyrir að enn verði tafir á flugi um Bretland og Írland á morgun. Flugsamgöngur þar fóru verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS. Hundruðum flugferða var aflýst um allt Bretland og tugþúsundir farþega urðu fyrir áhrifum raskana á flugi. Forstjóri NATS baðst afsökunar í samtali við breska ríkisútvarpið BBC . Hún segir að ítarleg rannsókn verði gerð á því hvað hafi farið úrskeiðis. Að sögn forsvarsmanna NATS tók lengri tíma en vonir voru um að leysa vandamálið í kerfinu. Bilunin í dag hafði áhrif á flugferðir Icelandair til og frá Lundúnum. EPA / ANDY RAIN

Share this article