Annar dagur aðalmeðferðar í Höfðatorgsmálinu, þar sem þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg í mars, hófst í morgun. Skýrslutöku af vitni seiknaði vegna þess að það fann ekki byggingu Héraðsdóms Reykjavíkur. Á röltinu en fann ekki héraðsdóm Í morgun hófust skýrslutökur yfir vitnum í málinu. Í gær gáfu sakborningar og brotaþoli skýrslu. Skýrslutökur yfir vitnum í málinu hafa verið í morgun. Fyrsta vitnið til að gefa skýrslu var lengi að koma í dómsal en einhver misskilningur virðist hafa orðið til þess að hann fór á Hlemm en ekki í héraðsdóm við Lækjagötu. Lögreglumenn og túlkur reyndu að vísa honum veginn í rétt hús. „Hann er á röltinu en finnur ekki héraðsdóm,“ heyrðist í dómsal. Samkvæmt dagskrá átti aðalmeðferðin að hefjast klukkan 9:15 en um hálftíma tók fyrir vitnið að rata rétta leið. Túlkurinn kom aftur inn í dómsal klukkan 9:43 tikynnti að vitnið væri mætt. Varð hræddur þegar átökin brutust út Skýrslutaka yfir vitninu tók um 45 mínútur. Í máli hans kom fram að hann hefði farið tvisvar í bílakjallarann þetta kvöld og að atvikið hafi orðið í seinna skiptið. Hann lýsir því að hafa orðið mjög hræddur þegar átökin byrjuðu í bílakjallaranum. Hann sagðist hafa séð fólk slást, óviðeigandi hegðun og einhverja með kylfur. Hann sagðist ekki hafa orðið vitni að því þegar keyrt var á brotaþola á hvítum Land Rover og sagðist heldur ekki hafa séð neinn stunginn. Einn sakborninganna er grunaður um að hafa ekið á brotaþola á miklum hraða og annar er grunaður um að hafa barið hann ítrekað með óþekktu áhaldi eftir að ekið var á hann. Þriðji sakborningurinn í málinu er grunaður um að hafa stungið brotaþola í rasskinnina. Vitnið mundi ekki mikið af smáatriðum við skýrslutökuna. Hann sagðist hafa verið á mörgum lyfjum síðustu mánuði og það hafi áhrif á minni hans. Æsingur, ringulreið og sprautað úr slökkvitæki Saksóknari spilaði myndskeið af umræddu kvöldi í bílakjallaranum við Höfðatorg sem sýndi þegar keyrt var á brotaþola og það sem gerðist í aðdragandanum og eftir það. Á myndskeiðinu sjást að minnsta kosti einn maður sprauta úr slökkvitæki þannig að bílakjallarinn nánast fyllist af hvítu dufti. Það er meðal annars sprautað á brotaþola og hann barinn með barefli og sparkað í hann eftir að keyrt er á hann. Fjöldi grímuklæddra manna sjást hlaupa um og það virðist vera mikill æsingur og ringulreið í gangi. Vitnið man ekki mikið en sagðist hafa verið rosalega hræddur við það sem hann hafi séð í bílakjallaranum. Hann sagðist hafa farið úr bílakjallaranum eftir atvikið og keyrt í Hagkaup í Skeifunni þar sem hann hafi reynt, á bílastæðinu fyrir utan, að púsla atburðunum saman. Á myndskeiðinu sést maður fara inn í bíl vitnisins í bílakjallaranum og þegar saksóknari spurði hann hvort hann muni hvenær maðurinn hafi farið út sagðist hann ekki muna það. Hann sagðist ekki skilja hvernig maðurinn komst inn í bílinn þegar hann horfði á myndskeiðið. Vitnið sagðist ekki vita hver hafi keyrt hvíta Land Rover-bílinn sem ekið var á brotaþola. Skýrslutökur yfir vitnum halda áfram í dag og stefnt er að því að ljúka aðalmeðferðinni á föstudag.