Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hátíð sem keyrir félagslífið strax í gang

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.9.2026 | 12:16 Hátíð sem keyrir félagslífið strax í gang Það er mikilvægt fyrir skólasamfélagið að hrista hópinn vel saman í upphafi annar, svo fólk kynnist og njóti lærdómsins í góðra vina hópi. Ljósmynd/Haraldur Helgi Guðmundsson Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Októberfest Stúdentaráðs Háskóla Íslands er nú haldið í 22. skipti og hefst með pompi og prakt á fimmtudaginn þó að undanfarna daga hafi verið upphitun fyrir hátíðina. „Októberfest byrjaði sem hátíð sem þýskunemar héldu við háskólann en hún náði strax miklum vinsældum og hefur stækkað mikið á þessum 22 árum,“ segir Katla Ólafsdóttir forseti Stúdentaráðs sem sér um að halda hátíðina. Vegfarendur á Miklubraut sjá að hvítu tjöldin eru komin upp og allt tilbúið fyrir fjörið sem mun standa í þrjá daga, frá 10.-12. september. „Hátíðin er orðin ómissandi hluti af háskólalífinu og við höfum undanfarið haldið hana í septembermánuði, eins og mér skilst að sé einnig gert í Þýskalandi þar sem hátíðin á sín upptök. Við vildum reyna að ná í góða veðrið sem er stundum í september og einnig að hafa hana sem fyrst á önninni þannig að nýnemar kynnist fljótt. Hátíðin er hugsuð til þess að keyra félagslífið strax í gang svo allir eignist sína félaga í skólanum og finni sig fljótt í náminu,“ segir Katla. Spenningur í lofti Það er þegar byrjað að hita upp fyrir hátíðina en á mánudaginn var opnunaratriði í Stúdentakjallaranum þar sem Dóra og Döðlurnar og Álfgrímur hituðu upp fyrir komandi fjör. „Í gær vorum við svo með Smittenlaug SHÍ í Stúdentakjallaranum þar sem einhleypir gátu leitað að ástinni,“ segir Katla hress og hún bætir við að í kvöld séu Alorian og Gross með tónleika kl. 20 í Stúdentakjallaranum. Það er alltaf mikið um að vera á Októberfest Stúdentaráðs HÍ og hér er mynd af Páli Óskari að trylla lýðinn á hátíðinni í fyrra. Ljósmynd/Kendall Alexis Vowels Síðan hefst hin opinbera dagskrá Októberfest SHÍ 2026 á fimmtudaginn. Þá verður svæðið opnað kl. 14.30, klukkan 15 verða úrslit nýnemamótsins í fótbolta haldin og eftir það verður HÍ-HR dagurinn kl. 16, þar sem lið hvors skóla keppa. Opnunaratriði hefst síðan í Tuborg-tjaldinu kl. 18.30 og svo verður tónlistarveisla um kvöldið. Katla segir að hátíðin hafi teygt anga sína víðar en til háskólasamfélags HÍ og nemendur úr HR og annað ungt fólk sæki hátíðina einnig heim. „Það geta allir komið sem eru orðnir 20 ára en nýnemar okkar sem eru yngri fá sérstakt armband sem sýnir að þeir séu undir lögaldri.“ Fjöldi tónlistarmanna Fjöldi tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni og má þar nefna norsku hljómsveitina The Bausa, breska rapparann Fimiguerrero og svo fjölda íslenskra listamanna, m.a. Birni, Bríeti, Gísla Pálma, Pál Óskar, Ízleif, Joey Christ, Unu Torfa, Eyþór Wöhler, Flóna og marga fleiri. Hægt er að skoða dagskrá á vefnum Ofest.is og þar er einnig hægt að kaupa miða, þó að fáir séu eftir þegar þetta er ritað. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hátíð sem keyrir félagslífið strax í gang „Hann er alltaf með þennan tannbursta“ Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í Sviss Mjög gagnrýninn á KSÍ Yfirheyrslum „hugsanlega lokið“ Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kerfisbundinn vandi í skólakerfi jöfnuðar Ísland skrapar botninn í nýrri könnun Finnur ekki héraðsdóm Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Hátíð sem keyrir félagslífið strax í gang „Hann er alltaf með þennan tannbursta“ Tveir alvarlega slasaðir eftir sprengingu í Sviss Mjög gagnrýninn á KSÍ Yfirheyrslum „hugsanlega lokið“ Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þykk þingmálaskrá en sumt vantar Kerfisbundinn vandi í skólakerfi jöfnuðar Bjarnargreiði við börnin Útiloka netárás vegna bilunar í flugumferðarstjórn Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Biður Loga afsökunar Andlát: Christian Roth Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Bætur hækkuðu um 150% á tíu árum Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%

Share this article