Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ágúst dró niður meðalhita sumarsins

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.9.2026 | 13:18 Ágúst dró niður meðalhita sumarsins Óhætt er að segja að rigningakaflar hafi sett svip sinn á sumarið í Reykjavík. Inn á milli komu sólarkaflar sem glöddu íbúa og gesti. mbl.is/Karítas Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Bætir í úrkomuna síðdegis Sól um land allt og hitinn gæti náð 18 stigum Varað við hvassviðri á Suðausturlandi Varað við öflugum vindhviðum Vegfarendur varaðir við hvassviðri » Fleiri tengdar fréttir Nýliðinn ágústmánuður var tiltölulega kaldur á landinu og úrkomusamur, einkum á norðan- og vestanverðum hluta þess. Þetta dregur meðalhita sumarsins niður, eins og sjá má í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar. Meðalhiti sumarsins á landsvísu var 10,0 stig þessa þrjá mánuði, sem er 0,3 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Er þetta nærri meðaltali þessarar aldar. Júní og júlí voru hlýir en ágúst var kaldur, að því er fram kemur í tíðarfarsyfirlitinu. Sumarið var að tiltölu hlýjast á Austurlandi en kaldara á vestanverðu landinu. Júlí var óvenjulega hlýr og þurr á Austurlandi og þar endaði mánuðurinn víða á meðal hlýjustu og þurrustu júlímánaða sem vitað er um. Á meðan var mjög úrkomusamt og talsvert kaldara á Suðvestur- og Vesturlandi. Mánuðirnir júní til ágúst saman eru sá tími ársins sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin skilgreinir sem sumar á norðurhveli jarðar, Veðurstofa Íslands telur hins vegar september vera sumarmánuð. Trausti Jónsson veðurfræðingur vekur á þessu athygli í bloggi sínu Hungurdiskum á mbl.is. „Veðurstofusumarið“ er ekki liðið, september bíður, segir Trausti. September ræður miklu Breytileiki hita er meiri í september en í öðrum sumarmánuðum og skeri hann sig úr sumarbræðrum sínum getur hann ráðið fremur miklu um hita sumarsins í heild, bætir Trausti við. Sumur sjöunda og áttunda áratugar síðustu aldar sitja mjög í huga ritstjóra hungurdiska, þegar hann var á tánings- og þrítugsgaldri, segir Trausti. Á þeim 50 til 60 árum sem síðan eru liðin hefur hlýnað um meira en 1,2 stig. „Er nokkur furða að honum finnist öll sumur nú hlýrri og betri en áður – jafnvel þau lakari.“ Köld sumur hafi lengi látið bíða eftir sér, helst að 2015 geti gert tilkall til þess. „Við skulum þó muna að hnattræn hlýnun mun seint útrýma köldum sumrum og enginn má verða hissa þótt slíkt sumar birtist allt í einu. En ekkert (alþjóða-)sumar hefur enn náð því að lenda „út úr kortinu“ hvað hlýindi snertir. Við verðum enn að bíða 12 stiga sumars. Það gæti komið, segir Trausti. Meðalhiti sumarmánaðanna þriggja í Reykjavík var 10,7 stig sem er 0,2 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhitinn er í 46. til 47. sæti á lista 156 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 11,0 stig sem er 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Meðalhiti sumarsins þar raðast í 25. til 26. sæti á lista 146 ára. Meðalhiti sumarsins var 10,1 stig í Stykkishólmi sem er jafnt meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Egilsstöðum var meðalhiti sumarsins 10,8 stig (0,8 stigum yfir meðallagi). Meðalhiti sumarsins þar raðast í 11. hlýjasta sæti á lista 72 ára. Á Dalatanga var meðalhiti sumarmánaðanna þriggja 9,3 stig (1,1 stigi yfir meðallagi) og er sumarið þar það næsthlýjasta á lista 87 ára (það var hlýrra sumarið 2021). Á Stórhöfða var meðalhitinn 9,9 stig (0,1 stigi yfir meðallagi). Sólskinsstundir mældust 539,9 í Reykjavík þessa þrjá mánuði, sem er rétt yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 eða 2,4 stundum yfir. Sumarið var sólríkt á Akureyri. Þar mældust sólskinsstundir sumarsins 564,9 sem er 84,5 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Mikið rigndi í Reykjavík Úrkoma í Reykjavík mældist 246,2 millimetrar sumarmánuðina þrjá, sem er um 55% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þetta var sjötta úrkomusamasta sumarið í Reykjavík frá upphafi mælinga. Úrkomumælingar hafa verið samfelldar í Reykjavík frá 1920, en mælingar voru einnig nokkuð áreiðanlegar á árunum 1884 til 1907. Sömuleiðis var mælt á árunum 1829 til 1854, en ekki á alveg sambærilegan hátt og nú. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 190,4 mm sem er um 65% umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoma sumarmánaðanna þriggja 101,8 mm sem er 5% umfram meðallag. Þar var úrkoma vel undir meðallagi í júlí en yfir meðallagi í júní og ágúst. Á Dalatanga mældist sumarúrkoman 276,2 mm sem er 80% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Þar var óvenjuþurrt í júlí, úrkoman einungis 5,3 mm. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Veður Bætir í úrkomuna síðdegis Sól um land allt og hitinn gæti náð 18 stigum Varað við hvassviðri á Suðausturlandi Varað við öflugum vindhviðum Vegfarendur varaðir við hvassviðri » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ungfrú Austurríki er látin 22 ára Skemmtikrafturinn hættur í fótbolta Ágúst dró niður meðalhita sumarsins Lögregla engu nær Aflýsti símtali eftir að Trump fagnaði sigri Afd Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óhjákvæmileg óvissa skapast Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Ísland skrapar botninn í nýrri könnun Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Borgar sig ekki að fara af stað Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Ungfrú Austurríki er látin 22 ára Skemmtikrafturinn hættur í fótbolta Ágúst dró niður meðalhita sumarsins Lögregla engu nær Aflýsti símtali eftir að Trump fagnaði sigri Afd Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Þykk þingmálaskrá en sumt vantar Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Bjarnargreiði við börnin Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Borgar sig ekki að fara af stað Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%

Share this article