Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Segir stöðu aðildarumsóknar óbreytta

Read Full Article →

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir í bréfi til Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, sem fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, að að staða aðildarumsóknar Íslands sé óbreytt. Tilefni bréfaskriftanna er þjóðaratkvæðagreiðslan um hvort Ísland skyldi hefja á ný viðræður um aðild að ESB, sem meirihluti þjóðarinnar hafnaði. Í bréfinu er jafnframt greint frá því að ríkisstjórnin hafi ekki í hyggju að hefja aðildarviðræður á ný. Þótt niðurstaðan hafi verið þessi haldi náið samstarf Íslands og ESB áfram. Í viðtölum eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar lá fyrir vildu formenn ríkisstjórnarflokkanna ekki gefa afdráttarlaus svör um hvort að aðildarumsóknin frá árinu 2009 yrði formlega dregin til baka í ljósi niðurstöðunnar. Næstu skref yrðu rædd í utanríkismálanefnd. Í síðustu viku greindi Þorgerður Katrín þó frá því í viðtali við Morgunblaðið að hún vildi ekki draga umsóknina til baka. Sagði hún að það gæti gert allt aðildarferlið lengra og torveldara fyrir íslensk framtíðarstjórnvöld ef sú staða kæmi upp síðar meir að þau vildu ganga til aðildarviðræðna við ESB. Ekki verður betur séð en að bréfið til formanns ráðherraráðs Evrópusambandsins sé staðfesting á því að stjórnvöld hyggist ekki draga umsóknina formlega til baka. Nokkrir þingmenn í stjórnarandstöðinni hafa talað fyrir því að nú sé rétti tíminn til að draga aðildarumsókn Íslands formlega til baka í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í kjölfar kosninganna að eðlilegt væri nú að draga umsóknina formlega til baka.

Share this article