Daníel Sæberg Hrólfsson hefur tekið við starfi rekstrar- og þjónustustjóra hjá Eignaleigunni. Í nýju starfi mun Daníel meðal annars leiða uppbyggingu á þjónustu Eignaleigunnar við fasteignaeigendur en Eignaleigan sinnir meðal annars umsýslu langtíma- og skammtímaleigu, eftirliti, þrifum, línþjónustu og öðrum daglegum rekstri fasteigna. Daníel er viðskiptafræðingur og hefur fjölbreytta reynslu af rekstri, verkefnastjórnun, sölu, markaðsmálum og þjónustu. Undanfarin ár hefur hann meðal annars starfað sjálfstætt við verkefnastjórnun, markaðsmál, vöruþróun og viðburðahald. „Ég hef alltaf haft mest gaman af því að byggja upp þjónustu, bæta ferla og vinna með fólki. Þess vegna finnst mér þetta starf passa mér mjög vel og ég er spenntur fyrir því að taka þátt í næsta kafla hjá Eignaleigunni,“ segir Daníel.