Innlent | mbl | 9.9.2026 | 16:13 Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Múlagöng eru einbreið. mbl.is/Sigurður Ægisson Setja bókamerki Tveir menn hafa verið dæmdir í fimm og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að hafa sprengt heimatilbúna sprengju í Múlagöngum aðfaranótt 18. mars 2021. Mennirnir voru sakfelldir fyrir stórfelld og sérstaklega vítaverð eignaspjöll. Sprengjan var meðal annars útbúin úr púðri úr stjörnuljósum og flugeldum sem komið var fyrir í þrýstikúti. Sprengjunni var komið fyrir undir tæknirými við spennistöð í göngunum. Við sprenginguna fór rafmagn af göngunum og miklar skemmdir urðu á tæknirýminu. Göngin voru rafmagnslaus alla nóttina og fram eftir næsta degi. Tjón Vegagerðarinnar var í ákæru sagt nema rúmum 3,1 milljón króna. „Gífurlegt eyðileggingarafl“ Í málinu lá fyrir matsgerð byggingarverkfræðings með sérþekkingu í bruna- og áhættuverkfræði. Þar kom fram að gríðarlegur kraftur hefði myndast við sprenginguna og að yfirþrýstingur hefði verið áætlaður um 40 loftþyngdir. Matsmaðurinn taldi að sprengjan hefði getað valdið gríðarlegum skaða við aðrar aðstæður, jafnvel í tuga eða hundraða metra fjarlægð. Mestur hluti sprengiaflsins fór hins vegar í að lyfta og hreyfa þungan gám sem sprengjan var undir og mynda gíg í jörðina. Í matsgerðinni var talið nokkuð heppilegt að þrýstikútnum hefði verið komið fyrir undir gámnum þar sem það takmarkaði skaðann. Kastaðist til við sprenginguna Dómurinn taldi sannað að mennirnir tveir hefðu tekið þátt í að búa sprengjuna til, valið saman staðinn þar sem hún var sprengd og komið henni fyrir undir tæknirýminu. Þá var talið sannað að annar mannanna hefði lagt eld að kveikjuþræðinum. Báðir neituðu sök fyrir dómi. Annar viðurkenndi þó að hafa verið í göngunum þegar sprengingin varð og lýsti því að krafturinn hefði kastað honum harkalega í vegg. Dómurinn taldi framburð hans um gerð sprengjunnar og eigin þátt í atburðunum ótrúverðugan. Hinn sagðist muna lítið eftir atburðunum. Við rannsókn málsins hafði hann hins vegar viðurkennt þátttöku sína og lýst gerð sprengjunnar og ferðinni í göngin. Dómurinn taldi skýringar hans á breyttum framburði ekki trúverðugar og lagði fyrri framburð hans hjá lögreglu til grundvallar. Málið dróst úr hófi Dómurinn taldi háttsemi mannanna vítaverða og brotið sérstaklega stórfellt með hliðsjón af hættueiginleikum sprengjunnar. Þótt ekki væri talið sannað að þeir hefðu haft beinan ásetning til að eyðileggja verðmæti taldi dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að þeim hefði mátt vera ljóst að mikil hætta og eyðilegging gæti fylgt sprengingunni. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að rúm fimm ár voru liðin frá brotinu og að rannsókn, útgáfa ákæru og meðferð málsins fyrir dómi hefðu dregist úr hófi án þess að ákærðu bæru ábyrgð á töfunum. Refsingar beggja mannanna eru skilorðsbundnar til tveggja ára. Þeim var jafnframt gert að greiða málsvarnarlaun verjenda sinna. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nýi táningur City fær mikið lof Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Kristrún og Alma fengu leiðsögn um nýja deild Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Óhjákvæmileg óvissa skapast Vill heimild til að selja Haga Þetta boðar Inga til að bæta árangurinn í PISA Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Vill heimild til að selja Haga Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Nýi táningur City fær mikið lof Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Kristrún og Alma fengu leiðsögn um nýja deild Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útiloka netárás vegna bilunar í flugumferðarstjórn Vill heimild til að selja Haga „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Vill heimild til að selja Haga Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%