Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq hækkar um 3% á annars rauðum degi

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um eitt prósent í 2,3 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Gengi 22 félaga af 27 félögum aðalmarkaðarins lækkaði í viðskiptum dagsins, þar af lækkaði gengi fjórtán félaga um eitt prósent eða meira. Mesta veltan, eða um 625 milljónir króna, var með hlutabréf Íslandsbanka sem lækkuðu um eitt prósent. Gengi bankans stendur nú í 140,4 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra síðan 8. júlí síðastliðinn. Hlutabréfaverð JBT Marels og Oculis lækkaði mest eða um meira en 3%. Þess má þó geta að velta með bréf félaganna tveggja var tiltölulega lítil. Þá lækkaði hlutabréfaverð Eikar fasteignafélags og Ása, móðurfélags Símans, um meira en 2%. Þrjú félög hækkuðu í viðskiptum dagsins. Hlutabréfaverð Amaroq hækkaði mest eða um 3,4% í hundrað milljóna króna veltu. Gengi Amaroq stendur nú í 181 krónu á hlut og hefur ekki verið hærra síðan í byrjun mars. Gengið hefur alls hækkað um þriðjung frá byrjun júlí síðastliðnum.

Share this article