Innlent | mbl | 9.9.2026 | 21:26 „Við skuldum engri elítu neitt“ Inga Sæland sagði Flokk fólksins þekkja sitt erindi í ræðu sinni á Alþingi í kvöld. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hóf ræðu sína á Alþingi í kvöld með því að vísa til stofnunar Flokks fólksins. „Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins fyrir um áratug þá bárust mér fregnir af því að 9,1% barnanna okkar byggju við mismikla fátækt. Þar og þá á eldhúsborðinu heima ákvað ég að stofna stjórnmálaflokk til að berjast gegn fátækt og réttlátara samfélagi fyrir alla. Þannig varð Flokkur fólksins til.“ Ráðherrann sagði fólki hætta til að gleyma því að á bak við hverja einustu tölu og krónu í fjárlögum væri manneskja. „Fólkið fyrst svo allt hitt“ „Þar er eldri borgari sem byggði upp þetta land en þarf að velja á milli þess að leysa út lyfin sín eða eiga mat á diskinn. Þar er öryrkinn sem mætti lokuðum dyrum í fordómum og fordómum í kerfi sem átti að grípa hann. Þar er einstæða foreldrið sem of láglauna einstaklingurinn sem vinnur myrkranna á milli en nær ekki endum saman.“ Inga sagðist hafa helgað líf sitt baráttu þeirra sem eru utangarðs í samfélaginu, í æðsta ræðustóli landsins. „Fólkið fyrst svo allt hitt,“ sagði Inga og tók fram að hún væri stolt af þeim störfum sem ríkisstjórnin hefði unnið síðastliðin tvö ár. Inga og Kristrún voru kampakátar í þingsal. mbl.is/Karítas Skuldi engri elítu neitt Ráðherrann sagði að ósköp auðvelt væri að standa í ræðustól og þykjast vera vinur öryrkja, eldra fólks, barna og fátækra þegar kosningar nálgast. „Orð eru ódýr og loforðin fljót að gleymast en raunverulega prófraunin kemur þegar stjórnmálamenn þurfa að velja á milli þeirra sem eiga sterka og háværa hagsmunagæslu og þeirra sem enga eiga. Flokkur fólksins þekkir sitt erindi. Við erum ekki komin hingað til að þjóna einhverri valdaelítu eða gæta að sérhagsmunum útvalinna. Við skuldum engri elítu neitt. Við skuldum fólkinu í landinu allt. Í því felst okkar mesta frelsi, frelsi til að segja sannleikann, standa fast á okkar hugsjónum og berjast af heilindum fyrir því sem er rétt. Við höfum áorkað miklu á stuttum tíma en við erum rétt að byrja. Fólkið fyrst, svo allt hitt,“ sagði Inga. Þingið er komið aftur saman. mbl.is/Karítas Óréttlætiskaflanum lokið „Eitt stærsta baráttumál Flokks fólksins var að stöðva hið hróplega óréttlæti varðandi kjaragliðnun almannatrygginga. Ár eftir ár drógust aldraðir og öryrkjar stöðugt aftur úr launaþróun í landinu. Nú er þeim óréttlætiskafla lokið og samhent ríkisstjórn ykkar hefur bundið enda á þá skömm. Frá og með 1. janúar næstkomandi fylgja greiðslur almannatrygginga launavísitölu. Aldrei, aldrei hafa kjör þessara viðkvæmu hópa batnað sem nú. Loksins hefur okkur auðnast sú gifta að hafa tryggt öryrkjum og eldra fólki ígildi þess að sitja í kjaraborðið.“ Biðlistum eldra fólks eytt Inga sagði dapurlegt að sjá kjörna fulltrúa á Alþingi rísa upp á afturlöppunum til að mótmæla þeirri kjarabót til aldraðra og öryrkja harðlega. Á sama tíma verji þeir „með kjafti og klóm milljarðagróða þeirra ofurríku sem aldrei má snerta. Hvers konar samfélag er það sem státar af auðlegð og jöfnuði en á sama tíma hefur ekki efni á réttlæti fyrir alla,“ spurði Inga út í salinn. „Við munum eyða öllum biðlistum eldra fólks eftir öryggi og umönnun; stuðla þannig að því að elsta kynslóðin okkar muni eiga áhyggjulaust ævikvöld,“ sagði Inga. Hún segir ríkisstjórnina hafa komið um 1.400 nýjum hjúkrunarrýmum í framkvæmd. Algjört úrræðaleysi hefði ríkt í málaflokknum fram að því. Nóg er framundan hjá þinginu í vetur. mbl.is/Karítas Gríðarstórar áskoranir í menntamálum Inga sagði stjórnvöld nú horfast í augu við gríðarstórar áskoranir í mennta- og barnamálum. „Við getum ekki og við munum ekki sætta okkur við að stór hópur barna ljúki grunnskóla án þess að geta lesið sér til gagns. Við getum ekki sætt okkur við að vera enn á ný í fallsæti í PISA-kannana. Við getum ekki sætt okkur við að framtíðartækifæri barna okkar ráðist af því í hvaða póstnúmeri þau búa eða hver staða foreldra þeirra er. Kerfinu þarf að breyta og kerfinu verður breytt.“ Aðalnámsskráin verður einfölduð og aukin áhersla verður lögð á kjarnagreinar eins og stærðfræði, lestur og íslensku að sögn Ingu. Hún bætti því við að stórsókn væri hafin í útgáfu námsgagna til að létta undir með kennurum. Fyrsta ungmennastefna landsins verði sett í vetur. Hún minntist einnig á samræmdar reglur um símafrið í skólum og hækkun aldurstakmarka á samfélagsmiðlum til að vernda andlega heilsu ungmennanna. „Í fyrsta sinn er áhersla á raungreinar tryggð, sérstaklega í atvinnustefnu stjórnvalda og í fyrsta sinn í langan tíma er farið í raunverulegt stórátak í uppbyggingu verknámsskóla um land allt. Við erum einnig að innleiða tölustafi aftur í einkunnagjöf til að tryggja jafnræði og skýrara námsmat. Fram undan eru síðan mestu breytingar í barnaverndarlögum í 20 ár, nýtt meðferðarheimili í Garðabæ og fyrsta heildstæða aðgerðaáætlun Íslands gegn fátækt barna. Málin verða vart stærri en svo kæra þjóð.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Við skuldum engri elítu neitt“ Innkeyrsla Cage hrundi niður í heljarinnar holu Óvænt svar Bullock sló í gegn hjá áhorfendum Lögreglan hefur rannsókn á flokki Farage Ný lög myndu fyrirbyggja að börn sjái nektarmyndir Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Áfengisverslun á netinu: Svæft frumvarp endurflutt „Ein þjóð í einu landi“ Myndir: Kista Haraldar komin í grafhýsi Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » „Við skuldum engri elítu neitt“ Innkeyrsla Cage hrundi niður í heljarinnar holu Óvænt svar Bullock sló í gegn hjá áhorfendum Lögreglan hefur rannsókn á flokki Farage Ný lög myndu fyrirbyggja að börn sjái nektarmyndir Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Myndir: Veifuðu af svölunum með bros á vör Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl „Það er ekki hægt að spyrja þennan mann“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%