Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurnes Heitt vatn alls staðar um miðnætti Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Allir íbúar á Suðurnesjum ættu að vera komnir með eðlilegan þrýsting á heitu vatni um miðnætti, þetta segir Sigrún Inga Ævarsdóttir, upplýsingafulltrúi HS veitna. Lokað var fyrir heita vatnið á Suðurnesjum í dag vegna framkvæmda á stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og við dælustöð á Fitjum. Nú þegar er komið jafnvægi á heita vatnið á flestum stöðum í Reykjanesbæ og heitt vatn er byrjað að streyma í Voga og Suðurnesjabæ. Vogar á Vatnsleysuströnd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 mínútumÍÞRÓTTIR Sund Róbert Ísak endaði fimmti á EM Róbert Ísak Jónsson lauk keppni í 5. sæti í 100 m bringusundi á EM fatlaðra í sundi í dag og Sonja Sigurðardóttir endaði sjöunda í 100 m skriðsundi. Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál „Ég vil kalla þetta landsbyggðarskatt“ Sveitarstjórnarfólk á Norðurlandi eystra segir kílómetragjaldið vera landsbyggðarskatt og líst illa á hækkun í fjárlögum. Með henni gæti kostað tæplega 700 krónur að keyra frá Dalvík til Akureyrar og til baka. Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi „Ríkisstjórnin fær falleinkunn í hagstjórn“ Formaður þingflokks Framsóknarflokksins segir loforð ríkisstjórnarinnar um að berja niður vexti og verðbólgu hafa elst illa. Hann segir ríkisstjórnina fá falleinkunn í hagstjórn. Framsóknarflokkurinn sé reiðubúinn til samstarfs í vetur. Fyrir 14 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Naumt hjá ensku liðunum Arsenal og Liverpool unnu bæði andstæðinga sína í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Evrópumeistarar PSG burstuðu Slovan Bratislava og Börsungar fóru illa með Feyenoord. Fyrir 49 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Landlæknir kannar aðstæður hjá SÁÁ Skyndilegar uppsagnir stjórnenda SÁÁ eru mjög alvarlegar að mati landlæknis. Tryggja verði öryggi sjúklinga og gæði þjónustu hjá SÁÁ. Fyrir 51 mínútuMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Óður til núvitundarinnar Tónlistarfólkið Unnur Birna og Pálmi Sigurhjartarson voru að gefa út nýtt lag sem heitir When the Rain has Gone. Lagið var frumflutt í Popplandi í dag. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið „Mistök að byggja ekki upp skíðasvæðið í Skálafelli“ Fulltrúi Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir það mistök að byggja ekki upp skíðasvæðið í Skálafelli. Hann dregur áætlaðan kostnað við uppbygginuna í efa. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Þorgerður með skilaboð til Farage, Le Pen og AfD Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði né fyrir hvað hún stendur, sagði utanríkisráðherra við Farage, Le Pen og fleiri sem fögnuðu niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Íslands við ESB. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi „Við sögðumst ætla að laga Ísland. Við erum að laga Ísland“ Forsætisráðherra hvatti þingmenn og þjóð til dáða í stefnuræðu sinni á Alþingi. Hún sagði margt hafa áunnist síðustu tvö ár. Það tæki tíma að laga Ísland en það væri að takast. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Tal um tveggja ríkja lausn innantómt ef aðgerðir fylgja ekki Samband Bretlands og Ísrael hefur ekki verið verra í áratugi eftir að bresk stjórnvöld tilkynntu refsiaðgerðir gegn Ísrael í gær og sökuðu landtökufólk um þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Forsætisráðherra flytur stefnuræðu og þingmenn bregðast við Stefnuræða forsætisráðherra er á dagskrá Alþingis í kvöld. Þar gerir forsætisráðherra grein fyrir helstu stefnumálum ríkisstjórnarinnar. Þingmenn úr hverjum flokki flytja sínar ræður í kjölfarið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þorgerður fundaði með Zelensky á Keflavíkurflugvelli Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með forseta Úkraínu og yfirmanni úkraínsku leyniþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Segja sakborning hafa haft sætaskipti í Land Rovernum Vitni í Höfðatorgsmálinu, þar sem þrír eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps, segja bílstjóra bifreiðar sem var notuð til að keyra á mann, hafa verið undir stýri fyrir og eftir ákeyrsluna. Lögregla segir manninn hafa verið mjög kvalinn eftir hana. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Snýst um meira en að setja smyrsl á sárin tímabundið Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins vill ekki spá fyrir um hvort kjarasamningar haldi en segir mikilvægt að horfa til lengri tíma. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Støre: Flugvél Zelenskys varð næstum fyrir dróna á leið sinni til Óslóar Forseti Úkraínu flaug frá Moldóvu í gærkvöld til Óslóar til að vera við útför Haraldar V. Noregskonungs. Við upphaf ferðalagsins varð flugvél hans næstum fyrir dróna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Ég veit ekkert fyrir hvern ég er að taka þetta próf“ Skólastjóri Húsaskóla í Reykjavík segir niðurstöður PISA-könnunarinnar tilefni til að gera breytingar á samfélagslegu umhverfi barna. Hann segir börn, eins og fullorðna, ekki alltaf sjá tilganginn með lærdómi eða bókalestri. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Sjáðu nýja og endurbætta fríhöfn í Leifsstöð Nýjar verslanir þýska fyrirtækisins Heinemann voru opnaðar formlega á Flugstöð Leif Eiríkssonar í dag. Töluverðar úrbætur voru gerðar á fríhöfninni, en fjárfestingin er ein sú mesta í ferðaþjónustuverslun á Íslandi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Telur tíu prósenta líkur á að gervigreind tortími mannkyni innan áratugar Aðalöryggisrannsakandi Anthropic segir ekki til ramma til að beisla ofurgervigreind. Fyrrverandi varnarmálaráðherra Bretlands telur hættuna af henni meiri en af kjarnorkuvopnum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Rangt að handvalinn hópur nemenda taki PISA í útlöndum Hátt hlutfall nemenda á Íslandi tók þátt í PISA-könnuninni. Lektor við Menntavísindasvið HÍ segir að tiltekinn fjöldi barna þurfi að þreyta prófið til að það sé marktækt. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Nokkrum olíuflutningaskipum sökkt nærri Hormússundi Bandaríkjaher sökkti fimm olíuflutningaskipum í nótt. Íransher brást við með því að ráðast á átta olíuflutningaskip og tvö bandarísk skip. Heimsmarkaðsverð olíu rauk upp eftir árásirnar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Tímabundnar breytingar á flugi til Akureyrar og Egilsstaða Ragnhildur Helgadóttir Icelandair þarf að gera breytingar á flugáætlun til Akureyrar og Egilsstaða næstu vikur. Þetta er vegna nauðsynlegs viðhalds á einni af DHC 8 Q400 flugvélum félagsins. „Til að lágmarka áhrif breytinganna hefur Icelandair bætt við 15 aukaferðum (30 flugleggjum) til Akureyrar og Egilsstaða frá og með morgundeginum, fimmtudeginum 10. september, og næstu tvær vikurnar,“ segir í tilkynningu. Sætaframboð verður tímabundið minna en venjulega. Farþegar sem ætla að ferðast innanlands á tímabilinu eru hvattir til að bóka flug með fyrirvara eins og kostur er. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál „Sáralítið gerst“ og engar formlegar viðræður um kjarasamninga Frestur til að rjúfa kjarasamninga rennur út 8. október og forseti ASÍ er hóflega bjartsýnn á að verkalýðshreyfingin, atvinnurekendur og stjórnvöld nái saman. Eiginlegar viðræður séu hins vegar ekki hafnar og tíminn naumur ef samningar eigi að halda. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hálfs árs dómur fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Tveir menn voru fyrr á árinu dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum 2021. Þeir fengu báðir skilorðsbundna dóma, annar fimm mánaða og hinn sex. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ísland Leitar til lögreglu eftir að hafa greitt Sólarmegin 400 þúsund fyrir íbúð sem annað fyrirtæki leigir út Einn af viðskiptavinum leigufélagsins Sólarmegin á Alicante hefur leitað til lögreglu með mál sitt. Hann komst að því að íbúð sem hann leigði af Sólarmegin tengdist fyrirtækinu ekki neitt. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Sex ráð til að efla lesskilning barna Að tala við ung börn á blæbrigðaríku máli, lesa fyrir þau og umorða það sem þau segja er meðal þess sem foreldrar geta gert til að efla lesskilning þeirra síðar meir, segir læsisfræðingur. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Þakklætið er lykillinn að lífshamingjunni Söngkonan María Magnúsdóttir, eða MIMRA, var að senda frá sér lagið Þakka þúsundfalt, hún sendi póstkort í Poppland og sagði hlustendum frá. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður MAST svipti bóndann á Brimnesi vörslu búfjár: „Ég er ekki búinn að segja mitt síðasta” Bændur á Brimnesi í Eyjafirði hafa kært vörslusviptingu Matvælastofnunar á skepnum til atvinnuvegaráðuneytisins. Forstjóri stofnunarinnar segir slíkar aðgerðir þrautalendingu. Bóndi kennir einelti MAST um. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Merz slaufaði símtali við Donald Trump Björn Malmquist Friedrich Merz Þýskalandskanslari. EPA / HANNIBAL HANSCHKE Friedrich Merz Þýskalandskanslari aflýsti í dag símtali sem búið var að skipuleggja milli hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Þetta gerðist eftir að Trump fagnaði sigri harðlínuflokksins Alternative fur Deutschland í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt um síðustu helgi. Talsmaður Merz neitaði að gefa upp ástæðuna fyrir þessari ákvörðun, en sagði þó að tímasetningin á samtalinu hefði ekki rekist á við aðra liði í dagskrá kanslarans. Talsmaðurinn svaraði ummælum Trumps ekki beint, en sagði þó að Merz hefði iðulega mótmælt því að utanaðkomandi reyndu að hafa áhrif á stjórnmálaástandið í Þýskalandi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurnes Búa sig undir að hleypa heita vatninu á Brynjólfur Þór Guðmundsson Íbúar og atvinnurekendur í Innri-Njarðvík og Vogum geta vænst þess að heita vatnið komist aftur á innan skamms. HS Veitur hafa staðið í framkvæmdum á veitukerfi sínu og þess vegna hefur verið heitavatnslaust víða á Suðurnesjum. Upp úr klukkan eitt var byrjað a