Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

SKE sakar Símann um undir­verðlagningu með Heimilis­pakkanum

Read Full Article →

Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur afhent Ásum, móðurfélagi Símans, andmælaskjal vegna rannsóknar stofnunarinnar á sölu félagsins á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu í gegnum Heimilispakkann. „Frummat Samkeppniseftirlitsins sem birtist í andmælaskjalinu snýr að því að tímabundin tilboð á Heimilispakkanum hafi falið í sér svonefnda skaðlega undirverðlagningu í andstöðu við 11. gr. samkeppnislaga og tiltekin skilyrði ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015,“ segir í tilkynningu sem Ásar sendu frá sér í gærkvöldi. Málið tekur til tímabilsins 2019 - 2021 og snýr þannig að atvikum sem áttu sér stað fyrir fimm til sjö árum síðan. Ásar vekja athygli á því að skilyrði ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 hafi verið felld úr gildi af Landsrétti. „Andmælaskjalið felur ekki í sér bindandi stjórnvaldsákvörðun heldur er liður í meðferð málsins og gefur félaginu kost á að koma á framfæri skýringum, athugasemdum og gögnum áður en ákvörðun er tekin.“ Ásar segja að félagið muni eðli málsins samkvæmt nýta andmælarétt sinn og taka til fullra varna í málinu.

Share this article