Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Önnur vaxtahækkun Seðlabanka Evrópu í ár

Read Full Article →

Seðlabanki Evrópu hefur ákveðið að hækka stýrivexti sína um 0,25 prósentur, upp í 2,5%. Þetta er önnur vaxtahækkun bankans í ár en hann hækkaði stýrivexti um 25 punkta í júní síðastliðnum. Sjá einnig Hækka vexti í Evrópu í fyrsta sinn í tæp þrjú ár Í yfirlýsingu seðlabankans segir að mikil óvissa sé um efnahagshorfur framundan en hætta sé á að verðbólga verði yfir spám og hagvöxtur minni en gert var ráð fyrir. Það er rakið til verðhækkana á orkumörkuðum. Verðbólga á evrusvæðinu fór úr 2,9% í 3,3% milli júlí og ágúst og hefur ekki verið meiri síðan í september 2023. Ný verðbólguspá seðlabankans, sem er með 2,0% verðbólgumarkmið, gerir ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 3,0% í ár, 2,5% á næsta ári og 2,1% árið 2028. Þá er gert ráð fyrir að kjarnaverðbólga verði að meðaltali 2,5% í ár, 2,6% á næsta ári og 2,3% árið 2028. Verðbólguspáin var færð upp fyrir árin 2027 og 2028. Grunnspá bankans fyrir hagvöxt var jafnframt færðu upp fyrir árin 2026 og 2027 og gerir bankinn nú ráð fyrir 0,9% hagvexti í ár, 1,4% á næsta ári og 1,5% árið 2028.

Share this article