Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þriggja milljarða halli hjá borginni

Read Full Article →

Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar á fyrri árshelmingi var neikvæð um 3,2 milljarða króna. Afkoman var nærri 3,6 milljörðum króna lakari en áætlað var. Borgin birti árshlutauppgjör í hádeginu. „Niðurstöðurnar sýna glöggt hve mikilvægt verður að ná stjórn á rekstri borgarinnar, enda er ekkert sem ógnar grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur. Við höldum áfram vinnunni í hagræðingahóp og leggjum áherslu á að auka skilvirkni, draga úr sóun og bæta þjónustuna,” segir Hildur Björnsdóttir , borgarstjóri. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var neikvæð um 5,5 milljarða króna sem er 12 milljörðum króna lakari niðurstaða en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Til samanburðar var A- og B-hluti borgarinn rekinn með 5 milljarða afgangi á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu borgarinnar er bent á að matsbreyting fjárfestingaeigna Félagsbústaða hafi verið neikvæð á tímabilinu um sem nemur 2,3 milljörðum króna sem hafði neikvæð áhrif á niðurstöður rekstrar. Afskriftir 2 milljörðum yfir áætlun Skatttekjur A-hlutans voru 84,3 milljarðar króna eða 1,2 milljaðrar yfir áætlun, þar af var staðgreiðsla útsvars 0,8 milljarðar yfir áætlun. Borgin segir að grunnrekstur A-hlutans, þ.e. rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) hafi verið 0,3 milljörðum betri en gert var ráð fyrir, en hún var jákvæð um 7,9 milljarða króna. „Afskriftir voru 2,0 milljörðum króna yfir áætlun sem skýrist af viðbótarafskriftum vegna fasteigna til niðurrifs, verkefna sem hætt hefur verið við, svo sem selalaugar í Húsdýragarði, og hjúkrunarheimila sem áður voru í sameiginlegri eign ríkis og borgar en fluttust 1. janúar síðastliðinn yfir til ríkisins og bókfært verð var afskrifað í samræmi við lög nr. 40/2025.“ Veltufé frá rekstri nam 8,6 ma.kr. og var 7,9% í hlutfalli af tekjum tímabilsins. Heildareignir A-hluta námu samtals 317 milljörðum króna og heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 233 milljarðar króna. Eigið fé nam 83,8 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall nam 26%. Heildareignir A- og B-hluta námu 1.055 milljörðum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum námu 583 milljörðum króna, og eigið fé nam 473 milljörðum króna.

Share this article