- What: Discussion about new border control system
- Impact: Not applicable
Innlent | mbl | 10.9.2026 | 14:58 Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Innleiðing nýs landamærakerfis hefur tekið tíma. mbl.is/Eggert Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Flugstöð Leifs Eiríkssonar Ný aðkoma að komubílastæðum við Leifsstöð Boðið í heimsókn eftir þuklið Bendir á „manngerðan flöskuháls“ við Leifsstöð Rekstur Lagardère bar sig ekki á flugvellinum Færri farþegar sem kaupa meira » Fleiri tengdar fréttir Ennþá er unnið við að fá sjálfsafgreiðslustöðvar í gang við landamærahlið á Keflavíkurflugvelli. Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli, segir fyrirséð að sú vinna verði áframhaldandi í einhvern tíma. Vonast hann til að stöðvarnar verði komnar í gagnið fyrir næsta sumar en þær eru hluti af nýju landamærakerfi sem verið er að innleiða hér á landi líkt og í öðrum ríkjum innan Schengen-samstarfsins. Þangað til verður að afgreiða farþega, sem koma til Íslands utan Evrópska efnahagssvæðisins, á landamærahliði. „Við erum að vinna alla vinnuna þar. Það er að taka upplýsingar og lífkenni, sem ætti með réttu að eiga sér stað á sjálfsafgreiðslustöðvum og mun færast þangað þegar þær komast í gagnið.“ Frétt af mbl.is Nýtt umhverfi á landamærum Íslands Frétt af mbl.is Búast má við töfum á landamærum Frétt af mbl.is Röðin tók lengri tíma en flugið Áskoranir í flestum ríkjum Þannig hafa nýjar aðferðir verið innleiddar en þar sem tæknin sem á að fylgja nýjum aðferðum er ekki tilbúin þarf að vinna vinnuna handvirkt, sem hægir mikið á öllu ferlinu. Vegna stöðunnar tekur landamæraeftirlit lengri tíma en fólk ætti að hafa vanist, líkt og mbl.is hefur greint frá. Ómar segir það veruleika sem lögreglan hafi búist við og hermi við sögur af umferðarteppum og öngþveiti sem skapast hefur á mörgum erlendum flugvöllum sem vinna að innleiðingunni. Langflest ríki innan Schengen-samstarfsins hafi þurft að eiga við einhvers konar áskoranir vegna innleiðingar nýs landamærakerfis og sjálfsafgreiðslustöðva á landamærahliðum. Landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert „Við skulum ekki gleyma hvert lokatakmarkið er“ Ómar segir verkefnið stórt og að því sé ekki miðstýrt af Evrópusambandinu, aðildarríkin þurfi hvert fyrir sig að koma sér upp vél- og hugbúnaði og samtengja svo miðlægum gagnagrunni. „Þetta er mjög umfangsmikið og flókið, bæði út frá hugbúnaði og því að vera með réttan vélbúnað. En það er bara áfram gakk hjá okkur í að klára þetta verkefni. Við skulum ekki gleyma hvert lokatakmarkið er. Við viljum öflugri landamæri og að óæskilegir aðilar komist ekki inn fyrir.“ Innleiðingarferlið hófst að sögn Ómars árið 2021 og segir hann allan vélbúnað hafa verið keyptan tímanlega. Svo hafi árin liðið og það hafi m.a. tafið innleiðingarferlið að endurskoða hafi þurft vélbúnaðinn. „Þetta eru fimm ár og það hefur mikil þróun átt sér stað á vélbúnaði. Embætti ríkislögreglustjóra hefur einnig verið að skipta út tölvum í landamærahliðunum í nýjar tölvur sem eru öflugri og þola meira álag.“ Frétt af mbl.is Segir eðlilegar skýringar á töfum Íslendingar þurfa ekki að fara á landamærahlið Ómar vill taka sérstaklega fram að Íslendingar sem eru að koma heim frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada eða annars staðar frá utan EES-svæðisins geti alltaf notað ABC-hliðin og þurfa ekki að fara á landamærahlið. „Þeir geta fengið náttúrulega greiða afgreiðslu þegar þeir koma heim.“ Tengdar fréttir Flugstöð Leifs Eiríkssonar Ný aðkoma að komubílastæðum við Leifsstöð Boðið í heimsókn eftir þuklið Bendir á „manngerðan flöskuháls“ við Leifsstöð Rekstur Lagardère bar sig ekki á flugvellinum Færri farþegar sem kaupa meira » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið“ Innkalla epli vegna of mikils magns varnarefna Verður einn launahæsti stjóri heims Ætla ekki að leigja salinn Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Selenskí og Þorgerður ræddu saman í Keflavík Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » „Ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið“ Innkalla epli vegna of mikils magns varnarefna Verður einn launahæsti stjóri heims Ætla ekki að leigja salinn Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni „Þetta er nú meira ástandið“ „Nú blasir við verðbólguvetur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur