Innlent | mbl | 10.9.2026 | 16:45 Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum „Þannig færðu meira af mannlega þættinum vegna þess að þú sparar viðvik manneskjunnar í öðru. Það er endalaus krafa um fólk og um aðstoð,“ segir Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Við erum að nýta gervigreind og tól og tækni til að aðstoða okkur í öllu mögulegu í heilbrigðisþjónustunni, meðal annars með mönnunarvandann,“ segir Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, í samtali við mbl.is, spurður út í framtíðar mönnunarvanda hjúkrunarheimila, sem Sjúkraliðafélag Íslands hefur meðal annars lýst áhyggjum af. Hjúkrunarrýmum hefur fjölgað verulega að undanförnu og er yfirlýst stefna stjórnvalda að bæta við töluverðum fjölda í viðbót. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði í vikunni að tæplega 1.400 ný rými væru nú í uppbyggingu, sé litið til allra rýma væru raunar alls 1.507 á teikniborðinu. Teitur leggur áherslu á að með ofangreindu eigi hann ekki við að vélmenni eða tækni komi í staðinn fyrir manneskjur heldur geti gervigreindin létt á mönnunarvandanum með því að sinna verkefnum eins og myndavélaeftirliti, framreiðslu og frágangi matar, þrifum og fleiru slíku, og þannig veitt starfsfólki meiri tíma til að sinna mannlegum þáttum starfsins. Dæmi um þetta er vélmenni sem hjálpar til við að hreinsa af borðum á Hrafnistu á Sléttuvegi. Frétt af mbl.is „Við ætlum að grípa börnin áður en þau falla“ Getur komið í veg fyrir alvarleg atvik Það er mat Teits að í síbreytilegum heimi megi heilbrigðisþjónustan ekki vera feimin við tæknina heldur eigi hún að prófa sig áfram með ólíkar lausnir. Einfalt dæmi um það sé möguleikinn á að vinna með þýðingarvélar eða aðrar nálganir á tjáskipti. Stór hluti starfsfólks í heilbrigðiskerfinu sé af erlendum uppruna og eðli málsins samkvæmt taki tíma að læra nýtt tungumál. Þá séu til lausnir sem meti byltu- og fallhættu einstaklinga. Myndavélakerfi hjálpa starfsfólki að meta til dæmis hvort viðkomandi sé að glíma við truflanir í svefni, meta styrk og getu og þannig séu meiri möguleikar á að koma í veg fyrir byltur. Þannig er gervigreindin upp að vissu marki þjálfuð til þess að átta sig á mynstrum. „Hún getur þá aðstoðað okkur, til dæmis ef það eru hreyfiskynjarar, sem eru mjög algengir í dag, þá nema þeir hreyfingu og gefa boð til starfsmanns um að fara og kíkja inn í herbergið,“ segir Teitur. „Þessi tækni er að breyta því að við getum verið fyrr á ferðinni og getum metið frávik fyrr og þar af leiðandi mögulega komið í veg fyrir til dæmis byltur, sem geta leitt til mjaðmarbrots og sjúkrahúsinnlagnar svo dæmi séu tekin. Þetta eru alvarleg atvik sem maður þarf að koma í veg fyrir.“ Dæmi um þetta er vélmenni sem hjálpar til við að hreinsa af borðum á Hrafnistu á Sléttuvegi. mbl.is/Eyþór „Það mun bara aukast“ Þar að auki séu til kerfi sem halda utan um lyfjagjöf, til dæmis með ráðgjöf um hvaða lyf eiga ekki saman eða hvaða lyf þarf að gefa með ákveðnum hætti, jafnvel rafrænni skömmtun og eftirfylgd. „Þetta er á mjög mikilli hraðferð. Nei, við erum ekki að leysa mönnunarvandann með gervigreind. Það er dálítið langt í það, en við erum aftur á móti að aðstoða okkur við að veita betri og öruggari þjónustu með tækni á hverjum einasta degi nú þegar og það mun bara aukast,“ segir Teitur. „Þannig færðu meira af mannlega þættinum vegna þess að þú sparar viðvik manneskjunnar í öðru. Þörfin fyrir hið mannlega er í raun endalaus og væri gott að geta nýtt það enn betur en hægt er í dag.“ Eftir því sem fólk verði minna virkt og umönnunarþörf verði meiri, sérstaklega á hjúkrunarheimilum, verði þjónustan meira krefjandi, rík krafa sé um öryggi og skilvirkni og hið manneskjulega sé í öndvegi, sem sé skiljanlegt. Hins vegar sé á sama tíma fjármögnun kerfisins að hluta til orðin úrelt, skjólstæðingar mun veikari en áður á hjúkrunarheimilum og viðmið að einhverju leyti breytt. „Það er kerfisvilla sem þarf að takast á við og við þurfum að einbeita okkur að því að gera enn betur, nýting tækni er einn liður í því,“ segir forstjóri Heilsuverndar að lokum. Frétt af mbl.is Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gullinbrú lokað í kvöld til suðurs Frá Stjörnunni til Noregs Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Heitasti mánuður sem mælst hefur um allan heim Foreldrar leyfi krökkunum að redda sér Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Heitasti mánuður sem mælst hefur um allan heim Undrast röksemdafærslu ráðherra Gæti margfaldað orkuna Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Gullinbrú lokað í kvöld til suðurs Frá Stjörnunni til Noregs Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Heitasti mánuður sem mælst hefur um allan heim Foreldrar leyfi krökkunum að redda sér Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Niðurrifi í Grindavík gæti lokið um mitt næsta ár Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Birta ekki dóma yfir sjálfum sér Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur