Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Optise hefur verið valið til þátttöku í Startup Battlefield, sprotakeppni bandaríska tæknimiðilsins TechCrunch. Að sögn Optise er fyrirtækið það fyrsta frá Íslandi sem kemst í keppnina á 20 ára sögu hennar. Optise er eitt 200 sprotafyrirtækja sem ritstjórn TechCrunch valdi úr hópi umsækjenda í ár. Fyrirtækin fá tækifæri til að kynna starfsemi sína á tækniráðstefnunni TechCrunch Disrupt, sem fram fer í San Francisco dagana 13. til 15. október. Startup Battlefield hefur verið haldin samhliða Disrupt um árabil og hafa fyrirtæki á borð við Dropbox, Cloudflare, Discord og Fitbit tekið þátt í keppninni. Sigurvegari hennar verður kynntur á lokadegi ráðstefnunnar. Sjá einnig Íslendingar komust í fimm liða úrslit í fyrsta sinn Optise þróar vefkerfi sem fylgist með frammistöðu vefsíðna, leggur til breytingar og getur framkvæmt þær að fengnu samþykki viðskiptavinar. Markmiðið er að gera fyrirtækjum kleift að sinna rekstri og þróun vefsvæða með minni mannafla. „Mig hefur dreymt um að keppa á þessu sviði síðan ég sat heima í sófa og horfði á Silicon Valley-sjónvarpsþættina, þar sem sprotafyrirtækið Pied Piper setti allt á annan endann í keppninni. Í október stöndum við á sama sviði og sýnum San Francisco framtíð vefsíðukerfa, og hún kemur frá Íslandi,“ segir Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Optise. TechCrunch Disrupt sækja árlega frumkvöðlar, fjárfestar og fulltrúar fjölmiðla. Að sögn Optise er gert ráð fyrir að gestir ráðstefnunnar í ár verði yfir tíu þúsund. Fyrir ráðstefnuna hyggst Optise halda kynningarviðburð í Grósku þar sem fyrirtækið mun kynna það sem það hyggst sýna á Disrupt.