Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.9.2026 | 19:49 Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Bjarni Benediktsson var forsætisráðherra Ísland þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti hringi í hann. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/AFP/ Setja bókamerki Donald Trump Bandaríkjaforseti hringdi í Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra Íslands, og stakk upp á því að Ísland yrði gert að 51. ríki Bandaríkjanna. RÚV greinir frá þessu. Símtalið átti sér stað skömmu fyrir alþingiskosningar á Íslandi samkvæmt miðlinum. Vitað mál var að Trump hefði hringt í Bjarna 26. nóvember 2024 og sýnt Íslandi mikinn áhuga. Það sem er hins vegar nýtt í því er að Trump hafi stungið upp á innlimun Íslands inn í Bandaríkin. Bjarni Benediktson segir í Facebook-færslu daginn sem hann fékk símtalið að Trump hefði verið mjög áhugasamur um Ísland en greindi ekki frá þessu atriði. Málið var kynnt á síðasta fundi utanríkismálanefndar samkvæmt ríkismiðlinum. Það á að hafa komið flatt upp á fundarmenn. Frétt af mbl.is Trump sýnir Ísland sem hluta af Bandaríkjunum Frétt af mbl.is „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Forsætisráðherrann, Bjarni Benediktsson, hitti Donald Trump forseta í Brussel árið 2017. Þessi mynd var tekin við þegar þjóðarleiðtogar NATO-ríkjanna rædu saman þar. AFP Var Trump að grínast? Ríkismiðillinn segir símtalið hafa verið óvenjulegt og óformlegt. Það hafi ekki farið fram eftir hefðbundnum boðleiðum. Enginn í innra kerfinu vestan hafs hafi vitað af því. Símtalið hafi ekki verið tekið upp né skrifað niður, hvorki hér né þar. Minnisblað, sem alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins skrifaði, varpi hins vegar ljósi á þessa tillögu Trumps. Ekkert hafi komið í ljós um tillögu forsetans í fréttatilkynningu forsætisráðuneyisins um símtalið. Bjarni á að hafa gefið lítið fyrir hugmyndir Trumps, um að innlima Ísland, og tekið því sem léttu gríni. Trump á þá að hafa gripið fram í fyrir forsætisráðherranum og beðið hann að íhuga uppástunguna vandlega að loknum kosningarsigri. RÚV segir utanríkisráðuneytið ekki hafa viljað afhenda miðlinum minnisblaðið á grundvelli undanþáguheimildar í upplýsingalögum um samskipti við erlend ríki og fjölþjóðastofnanir. Heimildamenn blaðamanna, sem hafi séð minnisbréfið, leggi misjafnan skilning í innihald minnisbréfsins hvað alvarleika tillögunnar varðar. Sumir telja að Trump hafi verið að grínast, aðrir ekki. Frétt af mbl.is Færsla Trumps „algjörlega óviðeigandi“ Frétt af mbl.is Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Bandaríkjaforset birti nýlega mynd þar sem Ísland og Grænland voru sveipuð fánalitum Bandaríkjanna. AFP/Brendan Smialowski Birti nýlega mynd af Íslandi sem hluta af Bandaríkjunum Bandaríkjaforsetinn var nýlega harðlega gagnrýndur af Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fyrir að birta mynd sem gaf í skyn að Ísland væri hluti af sambandsríkinu, Bandaríkjunum. Þar var Ísland þakið bandarísku fánalitunum. Sendiherra Bandaríkjanna, Billy Long, var kallaður á teppið af utanríkisráðherra í kjölfarið. Trump hefur sætt gagnrýni fyrir að girnast nágranna Íslendinga í vestri, Grænland. Þrátt fyrir hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins hefur forsetinn haldið áfram yfirlýsingum um að Bandaríkjastjórn girnist land þeirra og auðlindir. Danir og fleiri bandamenn Bandaríkjanna í NATO hafa brugðist ókvæða við. Það hefur Evrópusambandið sömuleiðis gert. Nú síðast boðaði ESB þau tíðindi að sambandið myndi veita 200 milljónir evra til fjárfestinga í Grænlandi. Það í kjölfar þess að Trump birti fyrrnefnda mynd af fjölda ríkja, þ. á m. Grænlandi og Íslandi, í fánalitum Bandaríkjanna. Frétt af mbl.is Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Frétt af mbl.is Ekki skuli gera lítið úr myndbirtingu Trumps Kortið umrædda sem Trump birti á samfélagsmiðli sínum, TruthSocial. Ljósmynd/Skjáskot Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Man. Utd - Sabah, staðan er 3:0 Viðsnúningur í afstöðu Reykjavíkurborgar Fyrsti sigur Eyjamanna Dóttir Önnu Nicole Smith sýnir nýja hlið á tvítugsafmælinu Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Megi skoða hvort stoppa eigi slakari nemendur af Gæti margfaldað orkuna Birta ekki dóma yfir sjálfum sér Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Nýjast á mbl.is » Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Man. Utd - Sabah, staðan er 3:0 Viðsnúningur í afstöðu Reykjavíkurborgar Fyrsti sigur Eyjamanna Dóttir Önnu Nicole Smith sýnir nýja hlið á tvítugsafmælinu Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Handvirk vinna á landamærum hægir á öllu ferlinu Niðurrifi í Grindavík gæti lokið um mitt næsta ár „Þetta er nú meira ástandið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu

Share this article