Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Afturelding og Breiðablik berjast um bikarinn

Read Full Article →

Afturelding og Breiðablik mætast í bikarúrslitum karla í fótbolta í kvöld. Breiðablik spilar í efstu deild og Afturelding í næstefstu. Mosfellingar eru að vísu á leið aftur upp í efstu deild. Breiðablik hefur einu sinni orðið bikarmeistari og þrisvar leikið til úrslita. Liðið lyfti bikarnum árið 2009 og því nokkuð langt liðið síðan síðast. Mosfellingar eru að leika til bikarúrslita í fyrsta sinn og gera nú atlögu að sínum fyrsta stóra titli. Breiðablik hefur á leið sinni í úrslitaleikinn lagt Kormák/Hvöt, Þrótt og Ægi. Þá mætti liðið ríkjandi Íslandsmeisturum Víkinga í undanúrslitum þar sem Blikar unnu 3-0. Afturelding mætti Ými, Njarðvík og Stjörnunni þar sem liðið vann öruggt. Í undanúrslitum mættu Mosfellingar Fylki þar sem leikurinn endaði í vítaspyrnukeppni. Liðin mætast á Laugardalsvelli klukkan 19:00. Upphitun hefst á RÚV 2 klukkan 18:20.

Share this article