- What: Legal dispute over a documentary about Elon Musk
- Impact: Film production company and director
Lögfræðingur Elons Musks hefur hótað framleiðendum heimildarmyndarinnar Musk málaferlum vegna ærumeiðinga. Lögfræðingurinn, Alex Spiro, segir í bréfi sem hann sendi Jigsaw Productions, sem framleiddi myndina, að leikstjóri hennar, Alex Gibney, og framleiðslufyrirtækið hafi byggt hana á fyrirframgefinni niðurstöðu. Í bréfinu segir einnig að Gibney hafi ekki sannreynt fullyrðingar í myndinni né borið þær undir Musk eða hans nánustu. Þess er jafnframt krafist að aðstandendur myndarinnar varðveiti öll gögn og efni tengd gerð hennar svo sem upptökur, rannsóknargögn og öll samskipti, þar sem búast megi við málaferlum. Heimildamyndin Musk var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á þriðjudag. Myndin fékk góðar viðtökur og mikið lófaklapp að lokinni frumsýningu. Í myndinni, sem er fjögurra tíma löng, er starfsferli Musks gerð skil frá því að hann var frumkvöðull í Sílikondalnum í upphafi aldarinnar þar til hann varð fyrsti billjónamæringur heims. Þá er fjallað um erfiða æsku hans og uppeldi í Suður-Afríku og einkalíf hans og samband hans við barnsmæður sínar sem hann á fjórtán börn með. Musk hefur ekki farið dult með andúð sína á myndinni. Hann hefur undanfarna daga eytt töluverðu púðri í að rakka Gibney og myndina niður á X, sem er í hans eigu.