Innlent | mbl | 11.9.2026 | 14:14 Vilja afnema sérréttindi opinberra starfsmanna Jens Garðar Helgason og Hildur Sverrisdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Hann er eflaust betri söngvari Bann við því að hylja andlit á almannafæri aftur á dagskrá Deilt um afdrif ESB-umsóknar „Loforðin hafa verið svikin“ » Fleiri tengdar fréttir Hildur Sverrisdóttir og Jens Garðar Helgason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hafa sett fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að sérréttindi opinberra starfsmanna til fimm ára leyfis frá opinberu starfi setjist þeir á þing verði afnumin. Þetta er í annað skiptið sem þetta frumvarp er lagt fram, en fyrir tveimur árum lögðu þau Hildur og Jens það einnig fram, en þá með samflokksfólki sínu þeim Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og Vilhjálmi Árnasyni, en þau Þórdís og Vilhjálmur eru nú bæði horfin af þingi til annarra starfa. Um er að ræða breytingu á lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, en þar er tekið fram að alþingismaður eigi rétt á leyfi frá opinberu starfi sem hann gegnir í allt að fimm ár. Þar að auki á hann að öðru jöfnu forgang í allt að fimm ár frá þeim tíma er leyfi hans lýkur að sambærilegri stöðu hjá hinu opinbera. Bent er á að þessi réttindi gildi eingöngu um opinbera starfsmenn en ekki þá sem eru á almennum vinnumarkaði. Engin haldbær rök „Ekki verður séð að fyrir hendi séu nein haldbær rök fyrir því að veita opinberum starfsmönnum þessi réttindi fram yfir aðra launamenn. Þá eru kjörtímabil að jafnaði fjögur ár og laun þingmanna yfir meðallagi á íslenskum vinnumarkaði. Opinberir starfsmenn sem taka sæti á Alþingi eru því ekki að taka sérstaka fjárhagslega áhættu með því að sitja á þingi. Þess utan njóta þingmenn sem koma af almennum vinnumarkaði ekki framangreindra réttinda án þess að það sé til vandkvæða fyrir þá að taka sæti á Alþingi. Því er lagt til að hinn lögbundni réttur opinberra starfsmanna til leyfis frá störfum vegna setu á Alþingi verði felldur brott,“ segir í greinargerð frumvarpsins. Varðandi forgang að sambærilegri stöðu er bent á að þótt til séu undantekningar frá meginreglu um að ráða skuli hæfasta einstaklinginn hverju sinni til starfa hjá hinu opinbera þá séu málefnaleg sjónarmið sem þar ríki. Eigi það til dæmis við um ráðningu pólitískra aðstoðarmanna og með forgangi fatlaðra gagnvart ófötluðum umsækjendum. Í þessu tilfelli telja flutningsmenn hins vegar undanþáguna ekki byggða á málefnalegum sjónarmiðum sem réttlæta að vikið sé frá verðleikareglunni. Það séu því engin knýjandi rök fyrir þessum sérréttindum. „Ekkert bendir til þess að afnám framangreindra sérréttinda hafi neikvæðar afleiðingar í för með sér. Ekki er loku fyrir það skotið að hlutfall opinberra starfsmanna á Alþingi lækki, sem tæplega getur talist ókostur, heldur má þvert á móti færa rök fyrir því að tilefni sé til að auka vægi þeirra sem hafa reynslu af hinum almenna vinnumarkaði á Alþingi,“ segir að lokum í greinargerðinni. Tengdar fréttir Alþingi „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Hann er eflaust betri söngvari Bann við því að hylja andlit á almannafæri aftur á dagskrá Deilt um afdrif ESB-umsóknar „Loforðin hafa verið svikin“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilja afnema sérréttindi opinberra starfsmanna Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ Uppselt hjá Aftureldingu og gamla stúkan nýtt Received benefits without having worked in Iceland Ostóber hefst með óvæntri ostaveislu Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn „… miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar“ – fyrir hvern? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vissi að heimurinn yrði aldrei samur Íslenskt velferðarkerfi er misnotað Deilt um afdrif ESB-umsóknar Beint: Minningarathöfn í New York Mest lesið Í gær Í vikunni Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Minningarstund um Hönnuh Jane Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Flugvirkjar Icelandair greiða atkvæði um vinnustöðvun Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Þiggja fé án þess að vinna handtak Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Vilja afnema sérréttindi opinberra starfsmanna Starfsmenn krefjast afsagnar stjórnar SÁÁ Uppselt hjá Aftureldingu og gamla stúkan nýtt Received benefits without having worked in Iceland Ostóber hefst með óvæntri ostaveislu Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn „… miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar“ – fyrir hvern? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fer fram á fimm ára dóm í Höfðatorgsmáli „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Flugvirkjar Icelandair greiða atkvæði um vinnustöðvun Segir lögreglu „einfaldlega giska“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Minningarstund um Hönnuh Jane Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Flugvirkjar Icelandair greiða atkvæði um vinnustöðvun Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Þiggja fé án þess að vinna handtak Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur