- What: Handball match between KA and Víkingur
- Impact: No security relevance
Víkingur tók á móti KA í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. Akureyringar unnu eins marks sigur, 25-26. KA byrjaði með látum og komst átta mörkum yfir, 1-9, á 12. mínútu. Víkingar löguðu stöðuna og 9-12 stóð í hálfleik. Mjótt var á munum undir lokin en alltaf héldu KA-menn forskotinu. Sigurður Páll Matthíasson minnkaði muninn fyrir Víkinga í eitt mark á lokasekúndum leiksins úr vítakasti en nær komust þeir ekki og KA menn taka stigin tvö eftir 25-26 sigur. Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fimm mörk fyrir KA.Rúv / Mummi Lú