Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Fordæma drónaárásir á olíuleiðslu

This article describes a kinetic attack, not a software vulnerability, involving drone strikes originating from Iraq targeting a critical oil pipeline in Saudi Arabia. The attack caused physical damage to infrastructure in the Riyadh and Medina regions and resulted in casualties. The primary technical concern is the use of unmanned aerial systems as an attack vector against industrial control systems and physical assets, with the incident highlighting cross-border threats to critical national infrastructure.
Read Full Article →

Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja drónaárásir hafi verið gerðar á olíuleiðslu sem liggur frá austri til vesturs í landinu á fimmtudagsmorgun. Drónarnir eru sagðir hafa flogið frá Írak og valdið tjóni í héruðunum Riyadh og Medina. Einhverjir særðust í árásunum en ekki hefur verið greint frá fjölda þeirra sem særðust. Utanríkisráðuneyti Sádi-Arabíu fordæmdi árásirnar og segir að þeim verði ekki svarað að sinni að ósk forsætisráðherra Íraks. Þess í stað ætli yfirvöld að styðja viðleitni írösku ríkisstjórnarinnar til að fyrirbyggja árásir frá Írak gegn Sádi-Arabíu og nágrannaríkjum. Yfirvöld í Sádi-Arabíu áskilja sér þó rétt til að verja fullveldi sitt, öryggi, innviði og íbúa. Ríkisstjórn Íraks sendi frá sér yfirlýsingu í gær sem greint var frá á ríkisfjölmiðlinum INA en í henni eru árásirnar sömuleiðis fordæmdar. Ríkisstjórnin heitir því að rannsaka hverjir beri ábyrgð á árásunum og ítrekar að bannað sé að nota landsvæði eða lofthelgi landsins til árása. Olíuleiðslunni var lokað um tíma samkvæmt þarlendum ríkisfjölmiðli. Olíuleiðslan er um tólf hundruð kílómetra löng og flytur olíu á milli austur- og vesturhluta landsins. Frá því að stríðið hófst í Mið-Austurlöndum hefur notkun á leiðslunni aukist vegna lokunar siglingaleiða um Hormússund.

Share this article