Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

500.000 rússneskir hermenn sagðir hafa fallið í innrásinni í Úkraínu

  • What: 500,000 Russian soldiers reportedly killed in Ukraine conflict
  • Impact: Military casualties in ongoing war
Read Full Article →

Breska leyniþjónustan áætlar að 500.000 rússneskir hermenn hafi fallið í stríðsátökunum í Úkraínu. Yfirmaður breska hersins, Rich Knighton, greindi frá þessu í viðtali við Sky News í gær. Mesta mannfallið hefur orðið eftir janúar 2023. Á sama tíma hafa Rússar einungis náð tveimur prósentum af landsvæði Úkraínu. Þá er talið að samanlagður fjöldi fallinna, særðra og þeirra sem saknað er sé 1,5 milljón rússneskra hermanna. Í gær voru 1.660 dagar frá því að innrás Rússa hófst í Úkraínu, 24. febrúar 2022. Hersveitir Rússa hafa því barist lengur í Úkraínu en Rússar börðust í bæði fyrri og síðari heimsstyrjöld. Knighton segir að stríðsreksturinn hafi leitt til hægari vaxtar í Rússlandi, samdráttar í neyslu og þrálátrar verðbólgu. Hann sagði að fórnarkostnaðurinn fyrir rússneskt efnahagslíf, velferð þjóðarinnar og framtíðarhorfur væru gríðarlegar.

Share this article