Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Nýr bikarmeistari krýndur í Mjólkurbikar kvenna

  • What: Women's football final between Grindavík/Njarðvík and Þróttur
  • Impact: Sports event in Iceland
Read Full Article →

Grindavík/Njarðvík og Þróttur leika um Mjólkurbikar kvenna í fótbolta í dag. Leikið er á Laudardalsvelli og hefst úrslitaleikurinn klukkan 16:00 en bein útsending á RÚV klukkan 15:20. Þróttur hefur einu sinni áður komist í úrslit; 2021 þar sem liðið tapaði 4-0 fyrir Breiðabliki. Grindavík/Njarðvík var stofnað fyrir tveimur árum og er í fyrsta skipti komið í úrslit en hvorki Grindavík né Njarðvík hefur áður komist svona langt. Grindavík komst tvisvar í undanúrslit, 1999 og 2017. Liðin leika bæði í Bestu deildinni þar sem Þróttur er sem stendur í fimmta sæti með stigi meira en Grindavík/Njarðvík í sjötta sætinu. Grindavík/Njarðvík hefur unnið báða leiki liðanna í sumar, 1-2 og 4-2, og liðin mætast svo einu sinni í viðbót í úrslitakeppninni. Grindavík/Njarðvík - Þróttur hefst klukkan 16:00, upphitun á RÚV hefst 15:20.

Share this article