Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hellisheiði lokuð vegna áreksturs: Einn fluttur á HSU

Read Full Article →

Hellisheiði er lokuð til austurs vegna áreksturs þriggja bíla í morgun. Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. mbl.is greindi fyrst frá. Samtals voru 12 manns í bílunum. Að sögn Þorsteins varð áreksturinn í Hveradalabrekkunni. Hann segir veginum hafa verið lokað vegna vinnu á vettvangi þar sem mikið brak sé vegna árekstursins. Sólin sé lágt á himni og hafi blindað ökumenn. Hann segir áreksturinn hafa verið minniháttar. Einn hafi verið fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) með minniháttar áverka. Ekki liggur fyrir hvenær vegurinn verður opnaður á ný.

Share this article