Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjar á Rauðahafi í skyndisókn í gær. Ein þessara eyja er Perim-eyja sem er í miðju Bab al-Mandab-sundinu við Rauðahaf, sem tengir Evrópu og Asíu um Rauðahaf og Súez-skurðinn. Frá þessari eyju geta Hútar gert árásir á olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu og ógnað skipaflutningum um þessa mikilvægu siglingaleið. Talsmaður Húta-hersins segir að öruggt sé fyrir öll skip að sigla um sundið, nema skip frá Sádi-Arabíu. Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabar. Hútar eru hliðhollir Írönum og ef þeir ná fullum tökum á Bab el-Mandeb-sundi gæti það dregið verulega úr flutningi olíu frá Mið-Austurlöndum með tilheyrandi verðhækkunum. Breska ríkisútvarpið segir að ef Sádar geti ekki flutt olíu um Bab al-Mandab-sundið þurfi olíuflutningaskip að sigla um Súez-skurðinn og þaðan norður fyrir og suður með stöndum Afríku til að koma olíu á markað í Asíu. Það hefði óneitanlega í för með sér verðhækkanir á olíu. a Drónaárásir á olíuleiðslu fordæmdar Drónaárásir voru gerða á olíuleiðslu sem liggur frá austri til vesturs í Sádi-Arabíu á fimmtudagsmorgun. Drónarnir eru sagðir hafa flogið frá Írak og valdið tjóni í héruðunum Riyadh og Medina og olíuleiðslunni var lokað um tíma vegna árásanna. Frá því að stríðið hófst í Mið-Austurlöndum hefur notkun á leiðslunni aukist vegna lokunar siglingaleiða um Hormússund. Yfirvöld bæði í Sádi-Arabíu og Írak hafa fordæmt árásirnar, Barein, Jórdanía og Katar einnig. Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen. Hútar og alþjóðlega viðurkennd stjórn landsins sömdu um vopnahlé 2022. Þrátt fyrir að það hafi fallið skömmu síðar úr gildi hafði vopnahléð haldið að mestu þar til nýlega.
The article describes a geopolitical threat, not a software vulnerability, where Houthi forces have seized strategic islands in the Red Sea, including Perim Island in the Bab al-Mandab Strait. This control enables physical attacks on oil tankers, specifically targeting Saudi Arabian shipping, which threatens to disrupt a critical global oil supply route. The resulting potential for supply chain disruption could lead to significant economic impacts, including increased oil prices.